Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vinstrið kynnir framboðslistann sinn

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.3.2026 | 20:27 Vinstrið kynnir framboðslistann sinn „Framboðið endurspeglar Reykjavík eins og hún er. Vinstrið samanstendur af fjölbreyttum hópi Reykvíkinga, ferskum röddum í bland við kunnuglegri,“ segir í tilkynningu frá Vinstrinu. Ljósmynd/Vinstrið Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Stefán leiðir í Fjarðabyggð Tillaga um uppstokkun tekin fyrir í kvöld Rafn leiðir lista Framsóknar og annarra framfarasinna Magnús nýr oddviti í Skagafirði Kjartan Atli í pólitík » Fleiri tengdar fréttir Vinstrið, sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri, hefur kynnt fullskipaðan framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. „Framboðið endurspeglar Reykjavík eins og hún er. Vinstrið samanstendur af fjölbreyttum hópi Reykvíkinga, ferskum röddum í bland við kunnuglegri,“ segir í tilkynningu frá Vinstrinu. Frétt af mbl.is Sameiginlega framboðið nefnt Vinstrið Hafna sérhagsmunum „Við viljum tryggja að öll eigi sæti við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar og hafi rödd í Reykjavík. Þess vegna bjóðum við fram baráttufólk og aðgerðasinna, kennara og nema, fólk af erlendum uppruna, verkafólk, líffræðinga, leikara og leikskólastarfsfólk, foreldra, ömmur og afa. Fólk úr öllum áttum sem þekkir raunveruleikann á eigin skinni. Fólk með margvíslegar sögur að segja en er líka tilbúið til að hlusta og taka slaginn fyrir Reykvíkinga.“ Í tilkynningunni segir enn fremur að Vinstrið sameinist um þá sýn að setja Reykvíkinga í fyrsta sæti. Lögð sé áhersla á stjórnmál sem byggi á samvinnu og samtali. Þá hafni Vinstrið sérhagsmunum. „Það er sótt að réttindum fólks víða um heim og stjórnmálamenn tefla fram einföldum lausnum við flóknum viðfangsefnum. Þessir straumar finnast líka hér. Við sjáum bakslag í réttindabaráttu kvenna, hinsegin fólks og flóttafólks. Við sjáum stjórnmálamenn sem nýta sér ótta og óvissu til að ala á sundrungu. Vinstrið tekur skýra afstöðu gegn slíkum málflutningi og hafnar honum. Við viljum Reykjavík þar sem fólk stendur saman.“ Þá kemur fram í tilkynningunni að Vinstrið ætli að leggja til lausnir og ráðast í raunhæfar aðgerðir til að takast á við margvísisleg viðfangsefni borgarinnar og borgarbúa og hafa jöfnuð og réttlæti sem sitt aðalsmerki. „Borgin sem við ætlum að byggja með fólkinu sem í henni býr er mannvæn og gróðursæl og í henni eigum við öll að geta fundið okkur fallega tilveru. Við erum tilbúin til verka. Fyrir Reykjavík. Fyrir þig. Fyrir okkur öll.“ Framboðslista Vinstrisins má sjá í heild sinni hér að neðan. Sanna Magdalena Mörtudóttir, mannfræðingur og borgarfulltrúi Líf Magneudóttir, grunnskólakennari og borgarfulltrúi Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir, viðurkenndur bókari og varaborgarfulltrúi Arna Magnea Danks, leikkona, áhættuleikstjóri og kennari Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum Laufey Líndal Ólafsdóttir, tæknistjóri á Samstöðinni, baráttukona og amma Riitta Anne Maarit Kaipainen, rekstrarstjóri Tinna Jóhannsdóttir, skrifstofukona og athafnastýra Steinar Harðarson, athafnastjóri og vinnuverndarráðgjafi Viðar Gunnarsson, fyrrum teymisstjóri Vettvangs- og ráðgjafateymis Reykjavíkur Bergrún Andradóttir, skrifstofustjóri Samtakanna ´78 og stjórnarkona í Kvenréttindafélagi Íslands María Hjálmtýsdóttir, kennari og aktívisti Illugi Gunnarsson, formaður Ungra vinstri grænna Halldór Auðar Svansson, tölvunarfræðingur Brynhildur Björnsdóttir, söngkona og háskólanemi Signý Sigurðardóttir, verkakona á leikskóla og litakona Sveinn Rúnar Hauksson, læknir Armando Garcia Teixeira, doktorsnemi og aðgerðasinni Nína Aradóttir, jarðfræðingur Þórdís Nadia Semichat, sviðshöfundur og danskennari Kristinn Schram, dósent við Háskóla Íslands Sigurður Andrés Sigurðarson, ökuleiðsögumaður Ragnhildur Björt Björnsdóttir, sagnfræðinemi Davíð Sól Páls, umsjónarkennari Ari Orrason, frístundaráðgjafi Ragnheiður Guðmundsdóttir, stjórnmálafræðingur Birna Björg Guðmundsdóttir, tollmiðlari og ritari Trans vina Björn Rúnar Guðmundsson, sagnfræðingur Sæmundur Helgason, grunnskólakennari og UT verkefnastjóri Sóley Lóa Smáradóttir, nemi Auður Alfífa Ketilsdóttir, smíðaleiðbeinandi Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Háskóla Íslands Ingileif Jónsdóttir, prófessor emeríta í ónæmisfræðum Silva Á. Skjalddal Eggertsdóttir, leiðbeinandi í leikskóla Viktor Árnason, líffræðingur Alexandre Amaral Da Silva, persónulegur aðstoðarmaður og aktívisti Sigrún Jóhannsdóttir, líffræðingur Rakel Hildardóttir, starfskona í Konukoti, neyðarskýli fyrir konur Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar Jón Helgi Þórarinsson, tölvuleikjahönnuður René Biasone, svæðasérfræðingur hjá Náttúruverndarstofnun Úlfhildur Melkorka Magnadóttir, hjúkrunarfræðinemi og frístundaleiðbeinandi Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur Sigrún Jónsdóttir, sjúkraliði á eftirlaunum Guðrún Ágústsdóttir, hópstjóri hjá Sorgarmiðstöð, fyrrverandi forseti borgarstjórnar Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Stefán leiðir í Fjarðabyggð Tillaga um uppstokkun tekin fyrir í kvöld Rafn leiðir lista Framsóknar og annarra framfarasinna Magnús nýr oddviti í Skagafirði Kjartan Atli í pólitík » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þýskt herskip á siglingu við Íslandsstrendur Myndir: Mánaberg opnað á nýjum stað Vinstrið kynnir framboðslistann sinn Þurftu framlengingu gegn botnliðinu Hamar/Þór sótti mikilvæg stig Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Vill gera glæpamönnum lífið leitt Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Þotan fór tvívegis norður í dag Vill gera glæpamönnum lífið leitt Lúxussnekkja á Pollinum Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Sorpa lokar á Sævarhöfða Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Nýjast á mbl.is » Þýskt herskip á siglingu við Íslandsstrendur Myndir: Mánaberg opnað á nýjum stað Vinstrið kynnir framboðslistann sinn Þurftu framlengingu gegn botnliðinu Hamar/Þór sótti mikilvæg stig Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka Leggja niður kennslu í einum árgangi Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Þotan fór tvívegis norður í dag Vill gera glæpamönnum lífið leitt Lúxussnekkja á Pollinum Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Sorpa lokar á Sævarhöfða Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum

Share this article