- What: Report on casualties from the ongoing conflict
- Impact: Over 1,500 people killed, with many injured
Íranska heilbrigðisráðuneytið segir yfir 1.500 manns hafa verið drepna frá upphafi stríðsins fyrir þremur vikum, minnst 200 þeirra undir átján ára aldri. Hið minnsta 21 þúsund hefur særst eða örkumlast í árásum, að sögn ráðuneytisins. Á þriðja hundrað heilbrigðisstofnana hafa skemmst eða eyðilagst og á þriðja tug heilbrigðisstarfsmanna týnt lífi. Ísraelsher hélt uppteknum hætti við eldflaugaárásir á Teheran í nótt og varnarmálaráðuneyti Sádi Arabíu greinir frá eldflaugaárás á höfuðborgina Ríad í gærkvöld. Ein þeirra var skotin niður en tvær skullu til jarðar á óbyggðu svæði. Flugher Sameinuðu arabísku furstadæmanna skaut niður þrjá íranska dróna í austanverðu landinu í morgun. Eldflaugar hafa einnig verið stöðvaðar. Varnarmálaráðuneytið segir tortímingu árásartækjanna útskýra háværar sprengingar sem landsmenn hafa heyrt. Stjórnvöld ríkja við Persaflóa segja mikla spennu ríkja vegna styrjaldarátakanna.