Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Telja að vorárás Rússa gegn Úkraínu sé hafin

  • What: Russia's spring offensive against Ukraine is underway
  • Impact: Military personnel and civilians in eastern Ukraine are affected
Read Full Article →

Úkraínski herinn felldi um eitt þúsund rússneska hermenn á 24 klukkutímum yfir helgina. Yfirmenn úkraínska hersins greindu frá mannfallinu í gegnum facebook síðu sína og tóku fram að einnig hefði þremur loftvarnarkerfum Rússa verið grandað og þremur skriðdrekum. Einni rússneskri þyrlu hefði þá verið grandað á laugardaginn. Í síðustu viku hefði mannfall meðal rússneskra hermanna einnig verið mikið og suma daga hefðu á milli 1500 og 1700 hermenn verið felldir. Þær tölur eru um helmingi hærri en flesta aðra daga yfir veturinn og því sé augljóst að aukinn kraftur sé kominn í áhlaup hersins. Greinendur bandarísku hugveitunnar ISW eða Institue for the Study of War sögðu á laugardag að líklega væru Rússar að hefja vorsókn sína þetta árið. Talsvert dregst úr hernaði yfir vetrarmánuðina í Úkraínu þar sem allt að 20 stiga frost er algengt víða í landinu. Líklegt sé að Rússar beini árásum sínum gegn borgunum Kramatorsk og Kostyantinivka og öðrum borgum í Donetsk-héraði. Friðarviðræður halda áfram í Flórída Samningamenn Úkraínu og Bandaríkjanna héldu áfram viðræðum sínum um mögulegt vopnahlé í Flórída á laugardag. Rússar taka ekki þátt í viðræðunum. Talsmenn Hvíta hússins lýstu viðræðum helgarinnar sem uppbyggilegum og að reynt væri að færast nær alhliða friðarsamkomulagi. Viðræður við Rússa um mögulegt friðarsamkomulag hafa verið í biðstöðu síðan Bandaríkin hófu árásir með Ísrael gegn Íran þann 28. febrúar.

Share this article