Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hringvegurinn enn lokaður um Möðrudalsöræfi – enn ein gul viðvörun á morgun

Read Full Article →

Búið er að opna hringveginn um Mývatnsöræfi, en enn er unnið að mokstri um Möðrudalsöræfi. Krapi eða þæfingur er á nokkrum leiðum eystra. Snjóþekja er víða en hálka er á stöku stað. Ófært er um Öxi, Breiðdalsheiði og Vatnsskarð eystra. Vegagerðin vekur athygli á því að hreindýr eru mjög víða á svæðinu frá Almannaskarðsgöngum að Djúpavogi, og eru vegfarendur beðnir um að aka varlega. Þá er varað við því að holur hafa myndast mjög víða í vegum á svæðinu. Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir Suðurland og Suðausturland frá hádegi á morgun, vegna austan- og norðaustan hríðar, hvassviðris eða storms. Vindhviður gætu náð allt að 40 metrum á sekúndu í Mýrdal, Öræfum og undir Eyjafjöllum. Þær gilda fram á þriðjudagsmorgun.

Share this article