Vegagerðin hefur ákveðið að loka hringveginum um Mývatn og Möðrudalsöræfi vegna mikilla snjóþyngsla og ófærðar. Fjarðarheiði hefur einnig verið lokað. Vegirnir munu ekki opna fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið og fólk sem ekki kemst leiðar sinnar í landshlutanum getur þurft að huga að ráðstöfunum fyrir gistingu. Sveinbjörn Hjálmarsson, þjónustufulltrúi hjá Vegagerðinni, segir aðstæður skelfilegar. „Það var í rauninni ákveðið að grípa til þessara aðgerða, að loka þessu, vegna þess að færðin er að breytast mjög mikið og mjög hratt. Það snjóar alveg ógeðslega mikið, er blint, og fólk út af – bæði heimamenn og ferðamenn,“ segir Sveinbjörn. Hann bendir á að fjöldi fólks hafi hringt í Vegagerðina og tilkynnt um bíla sem sátu fastir. „Því var ákveðið að grípa inn í áður en aðstæður versna. Það er alltaf svo erfitt þegar fólk ekur inn í erfiðar aðstæður. Þegar maður lokar á eftir þeim er svo mikið af bílum sem þarf að losa.“ Þá er færð sérlega slæm á hringveginum á Jökuldal. Aðstæður þykja ekki góðar í Vatnsskarði eystra. Vegurinn um Fagradal er enn opinn en Sveinbjörn segir líklegt að honum verði lokað klukkan 18. Ef aðstæður batni kunni það að vera endurskoðað áður en gripið er til lokunar. Sveinbjörn segir ófærðina þó ná víðar. „Það snjóar alveg ofboðslega mikið frá Álftafirði og alveg austur úr. Þæfingsfæri víða. Það eru bara 1-2 gráður, blauta í þessu og þungt færi.“