Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Víða unnið að mokstri og skilyrði slæm á fjallvegum

Read Full Article →

Mörg snjóruðningstæki eru á vegum úti í dag.Ágúst Ólafsson Í morgunsárið er víða unnið að mokstri eftir úrkomu næturinnar. Það á meðal annars við á hringveginum á Suður- og Vesturlandi þar sem krapi og snjóþekja er á mörgum helstu leiðum. Í athugasemdum veðurfræðings Vegagerðarinnar segir að á fjallvegum sunnan til á Vestfjörðum verði ofankoma og blint framan af degi en einnig á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum síðar. „Á Holtavörðuheiði, Vatnsskarði og Öxnadalsheiði fer versnandi síðdegis með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni. Á láglendi verður hins vegar væg þíða í dag.“ Nálgast má nánari upplýsingar um færð á vegum á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is .

Share this article