Mörg snjóruðningstæki eru á vegum úti í dag.Ágúst Ólafsson Í morgunsárið er víða verið að ryðja vegi eftir úrkomu næturinnar, meðal annars á hringveginum á Suður- og Vesturlandi þar sem krapi og snjóþekja er á mörgum helstu leiðum. Í athugasemdum veðurfræðings Vegagerðarinnar segir að á fjallvegum sunnan til á Vestfjörðum verði ofankoma og blint framan af degi og síðar í dag einnig á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. „Á Holtavörðuheiði, Vatnsskarði og Öxnadalsheiði fer veður versnandi síðdegis með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni. Á láglendi verður hins vegar væg þíða í dag.“ Nálgast má nánari upplýsingar um færð á vegum á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is .