Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Færð gæti spillst hratt á Aust- og Vestfjörðum í kvöld

Read Full Article →

Ekki hefur þurft að loka vegum þrátt fyrir hríðarveður á fjallvegum víða um land í dag, en færð gæti spillst hratt á Vestfjörðum og Austfjörðum þegar þjónustu Vegagerðarinnar lýkur í kvöld. Þá gæti tekið tíma að ryðja vegi í fyrramálið. Þetta segir Páll Ágúst Þórarinsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, í samtali við fréttastofu. Varað var við hríð og mjög blindum og erfiðum akstursskilyrðum á fjallvegum víða um land í morgun. Víðast hvar gengur veðrið niður fyrir kvöldið nema á Aust- og Vestfjörðum þar sem það gengur ekki niður fyrr en í nótt. Skaplegra veður verður í fyrramálið en snjómokstur á vegum gæti tekið nokkurn tíma. Aðsend / Gísli Páll Guðjónsson

Share this article