Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Flottur og frambærilegur fjölskyldujepplingur

Read Full Article →

Reynsluaksturinn fór fram í eðal íslensku vetrarveðri í byrjun mars. Rigning, rok og skafrenningur settu svip sinn á aksturinn – allt það besta sem kemur úr himinloftunum á þessum árstíma. Slíkar aðstæður eru þó í raun ágæt prófraun fyrir rafknúinn jeppling. Á blautum og hálum vegum kom í ljós að fjórhjóladrifið vinnur vel og bíllinn hélt stöðugleika án þess að verða stirður í akstri. Undir gólfinu er 77 kWh rafhlaða og samanlagt afl sem skilar um 360 hestöflum og 540 Nm togi. Samkvæmt tölum framleiðanda fer bíllinn úr 0 í 100 km/klst. á um 5,1 sekúndu. Það er meira en nægilegt í daglegum akstri og gerir framúrakstur auðveldan þegar þarf. Þrátt fyrir ágætan kraft er akstursupplifunin frekar róleg og stöðug en sportleg, sem hentar vel hlutverki bílsins sem fjölskyldujepplings. Innréttingin er einföld í útliti en falleg. Sætin eru klædd leðuráferð og á mælaborði má finna rúskinnsáferð sem gefur innanrýminu smá karakter. Rýmið í bílnum er gott og bæði farþegar í framsætum og aftursætum sitja þægilega. Nánar er fjallað um bílinn í Bílablaði Viðskiptablaðsins . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article