Innlent | mbl | 17.3.2026 | 12:15 Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Reyndi að taka líf sitt 11 ára gamall Ætlar þú að kaupa skó sem kosta meira en bíllinn minn? Fjarsambandið getur oft verið krefjandi Þurfti að sannfæra landamæraverðina 21 þúsund atkvæði í súginn » Fleiri tengdar fréttir Að skjóta karlljón með skammbyssu er ekki á hvers manns færi. Páll Reynisson, safnstjóri Veiðisafnsins á Stokkseyri, gerði þetta í tvígang í Afríku í sömu veiðiferðinni. Bæði ljónin eru uppstofnuð á safninu á Stokkseyri. „Það er fimmtíu prósent séns fyrir þig og fimmtíu prósent séns fyrir hann, þó að þú sért með byssuna,“ segir Páll þegar hann rifjar upp þessa veiði. Hann var með skammbyssu sem tók aðeins eitt skot. Eftir fyrsta skotið stökk ljónið af stað og ætlaði að ráðast á hann. Það tók Pál átta sekúndur að hlaða byssuna aftur. Seinna skotið fór í ljónið sem var á harðastökki í átt til hans, af fjörutíu metra færi. Þá féll það inn í hávaxið gras og Páll þurfti að fara inn í þykknið til að finna dýrið. „Verður allt stjörnuvitlaust“ „Vandamálið eru dauðu ljónin. Það er að segja ljónin sem eru dauðskotin og eiga ekki eftir nema einhverjar sekúndur. Þau koma samt. Það er vandamálið. Kettir taka skotum allt öðruvísi en öll önnur dýr,“ upplýsir Páll. „Það verður, á góðri íslensku, allt stjörnuvitlaust. Þetta er 200 sinnum stærra. Ljón eru ekkert annað en kettir. Þeir koma í þig á meðan að eitthvað bensín er í leiðslunum. Þó að þú takir kúluna út úr hjartanu. Það er ein regla í ljónaveiði. Þú skýtur þar til allt er orðið kjurrt, þó að þú þurfir tvö eða tuttugu. Það skiptir ekki máli. Þú hættir ekki fyrr en allt liggur kjurrt.“ Páll Reynisson er gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag og segir þar frá eftirminnilegri lífsreynslu sinni þar sem hann hefur veitt fjölmörg villt dýr með skammbyssu eina að vopni. Hann ræðir líka Veiðisafnið á Stokkseyri og þær fjölmörgu byssur sem Íslendingar hafa smíðað í gegnum aldirnar. Enn eru að finnast merkilegar byssur sem ekki var vitað um. Nú síðast í fyrra, þegar haglabyssur Steinþórs M. Stefánssonar uppgötvuðust fyrir nánast tilviljun. Þar er um að ræða einstakar byssur og sýnir Páll okkur eina slíka í þættinum. Steinþór lést 1967. Þrumurnar hans Eiríks Haraldssonar eru líka til umfjöllunar en hann smíðaði fimm slíkar skammbyssur. Þær eru völundarsmíð og fullkomin eftirlíking af gömlu góðu kúrekabyssunum. En aftur að ljóninu. Aðstæður voru með þeim hætti að þrjú karlljón voru í æti þegar veiðiflokkurinn nálgaðist. Ekki var vitað hvernig hin tvö ljónin myndu bregðast við og voru tveir menn með stóra riffla tilbúnir til að fella þau ef þau gerðu árás. „Þú getur bókað það að hann kemur í þig. Hann pikkar þig út. Þeir segja mér það að hann pikkar þann út sem skýtur. Það eru kannski fjórir menn saman og hann veit hver skaut og hann kemur beint í þig.“ Streitulosunin varð síðar Það þarf taugasterka og sjálfsörugga veiðimenn til að þora að setja sjálfan sig í þessar aðstæður. Páll segist ekki hafa verið stressaður meðan á þessum æsispennandi augnablikum stóð. Það gerðist hins vegar við morgunverðarborðið tveimur dögum síðar að hann skalf svo mikið að hann gat ekki haldið á kaffibolla. Hann segir að sér hafi verið sagt að þetta sé ekki óalgengt og fjölmargir lögregluþjónar sem heimsótt hafa safnið á Stokkseyri hafa staðfest við Pál að þeir hafi upplifað slíka streitulosun tveimur dögum eftir krefjandi og hættulegar aðstæður. Með fréttinni er brot af viðtalinu við Pál, þar sem hann segir frá ljónaveiðinni. Áskrifendur Morgunblaðsins geta nálgast þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér að neðan. „Ljón og lygasögur“ á Stokkseyri Tengdar fréttir Dagmál Reyndi að taka líf sitt 11 ára gamall Ætlar þú að kaupa skó sem kosta meira en bíllinn minn? Fjarsambandið getur oft verið krefjandi Þurfti að sannfæra landamæraverðina 21 þúsund atkvæði í súginn » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Gefa hundruð milljóna króna Tvær breytingar á íslenska liðinu Tökum frestað útaf heimilisofbeldi Eldur kviknaði hjá Te & kaffi Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Allir neita sök í Reykholtsmáli Fólk úr öllum áttum fyllti hótelið Segjast hafa drepið Larijani Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Hviður geta náð allt að 35 m/s Ætla að læra af mistökum sínum Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Norðvestan stormur og hríð Þarf að afturkalla skipulagið Ferðamenn höfnuðu utan vegar Tekjutap líklega vegna pakka Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Gefa hundruð milljóna króna Tvær breytingar á íslenska liðinu Tökum frestað útaf heimilisofbeldi Eldur kviknaði hjá Te & kaffi Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Grunaðir um harkalega líkamsárás Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Hviður geta náð allt að 35 m/s Ætla að læra af mistökum sínum Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Norðvestan stormur og hríð Þarf að afturkalla skipulagið Ferðamenn höfnuðu utan vegar Tekjutap líklega vegna pakka Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir