Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Leita fimmtu og síðustu byssunnar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.3.2026 | 20:43 Leita fimmtu og síðustu byssunnar Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Reyndi að taka líf sitt 11 ára gamall Ætlar þú að kaupa skó sem kosta meira en bíllinn minn? Fjarsambandið getur oft verið krefjandi Þurfti að sannfæra landamæraverðina » Fleiri tengdar fréttir Eiríkur Haraldsson, rennismiður og byssusmiður smíðaði fimm skammbyssur sem þykja mikil listasmíð. Vitað er um eigendur og staðsetningu fjögurra en hvar sú síðasta er niðurkomin er mönnum ráðgáta. Byssurnar ganga undir nafninu Þruma og er það nafn tilkomið vegna hávaðans sem stafar frá þeim þegar skoti er hleypt af. Þær taka mjög stór skothylki af gerðinni kaliber 357 magnum. Páll Reynisson safnstjóri Veiðisafnsins á Stokkseyri hefur lagt mikinn metnað í að finna og skrá byssur sem smíðaðar hafa verið á Íslandi. Þar eru Þrumurnar hans Eiríks hátt skrifaðar. Páll á sér þann draum að geta tekið ljósmynd af þeim öllum saman á einum stað. Til að það sé gerlegt þarf hann að hafa upp á fimmtu og síðustu byssunni. Sú byssa er ólík þeim fjórum sem vitað er um. Hún var krómuð en ekki blámuð eins og hinar fjórar. Byssurnar er nákvæm eftirlíking af Colt SAA skammbyssum sem margir kúrekar voru með á sér í það minnsta í kvikmyndum frá Hollywood um harðskeytta útlaga. Vestramyndir hafa notið vinsælda í gegnum áratugina og þar var Coltinn eitthvað sem allir þurftu að eiga. Eiríkur Haraldsson með eina af Þrumunum fimm sem hann smíðaði. Vitað er hvar fjórar þeirra eru niðurkomnar. Sú fimmta er óstaðsett. Páll var gestur Dagmála Morgunblaðsins og ræddi þar meðal annars um byssusmiði á Íslandi. Þar eru ýmsir nefndir til sögunnar og hefur Páll í samstarfi við þá Guðna Einarsson blaðamann og Jóhann Vilhjálmsson byssusmið aflað gagna og heimilda um íslenska byssusmiði fyrri tíma. Flestir eru þeir látnir sem lögðu stund á þessa iðn áður fyrr, nema Eiríkur og er ekki nema áratugur síðan að hann lauk við síðustu og fimmtu Þrumuna. Í því viðtalsbroti sem fylgir fréttinni fer Páll Reynisson yfir hluta af þessari sögu og handleikur nokkrar af merkilegustu byssum safnsins. Þeir sem hafa áhuga á að lesa sér meira til um byssusmiði á Íslandi finna allar upplýsingar á heimasíðu safnsins, hunting.is. Áskrifendur Morgunblaðsins geta nálgast viðtalið við Pál í heild sinni með því að smella á linkinn hér að neðan. „Ljón og lygasögur“ á Stokkseyri Tengdar fréttir Dagmál Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Reyndi að taka líf sitt 11 ára gamall Ætlar þú að kaupa skó sem kosta meira en bíllinn minn? Fjarsambandið getur oft verið krefjandi Þurfti að sannfæra landamæraverðina » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland - Portúgal, staðan er 54:55 Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Góður árangur Íslendinganna Hvað ef við gætum afkastað á við 4 milljónir? Meistaradeildin: Arsenal komið yfir – Haaland jafnar Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Segjast hafa drepið Larijani Páll kom að magnaðri lækningu Rosie Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Hviður geta náð allt að 35 m/s Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Ísland - Portúgal, staðan er 54:55 Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Góður árangur Íslendinganna Hvað ef við gætum afkastað á við 4 milljónir? Meistaradeildin: Arsenal komið yfir – Haaland jafnar Umræðan Af hverju að sækja um Evrópusambandsaðild? Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Svona á að styrkja þjónustu við börnin Sakar Kristrúnu um óheiðarlegan málflutning Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Hviður geta náð allt að 35 m/s Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir

Share this article