Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Einstakar haglabyssur sýndar um helgina

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.3.2026 | 23:15 Einstakar haglabyssur sýndar um helgina Eiríkur Haraldsson með eina af Þrumunum fimm. Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Veiðisafninu á Stokkseyri hefur áskotnast 11 haglabyssur og eru níu þeirra smíðaðar af Steinþóri M. Stefánssyni, en Steinþór lést árið 1967. Það var sonarsonur Steinþórs og nafni sem ánafnaði Veiðisafninu byssurnar og segir Páll Reynisson, veiðimaður og safnstjóri, að um einstakan fund sé að ræða í byssu- og iðnsögu Íslands. Byssurnar verða til sýnis, ásamt öðrum safngripum Veiðisafnsins, á byssusýningu sem haldin verður um komandi helgi. Þar verða og til sýnis merkir gripir sem ekki hafa verið sýndir opinberlega áður, en það eru skammbyssur sem Eiríkur Haraldsson rennismiður smíðaði, en einungis fimm eintök eru til af þeim. Kallaði Eiríkur skammbyssur sínar Þrumur. Haglabyssur Steinþórs eru í ýmsum útfærslum, en þær voru smíðaðar á árunum 1926-1960. Þær eru af hlaupvíddunum .410, 16 og 12 ga. Nefna má að hlaupvíddin 12 ga. er algengasta hlaupvídd haglabyssna hér á landi. Níu þeirra haglabyssna sem verða til sýnis smíðaði Steinþór frá grunni og eru allar byssurnar 11 merktar upphafsstöfum hans: SMS og númeraðar 1-11. Haglabyssurnar eru allar einskota en lásgerðir mismunandi. Talið er að Lárus heitinn Salómonsson, lögreglumaður og glímukappi, hafi fengið tvær byssur hjá Steinþóri og hafi önnur þeirra verið haglaskammbyssa af hlaupvíddinni .410 og hin 12 ga. haglabyssa. Þær hafa þó ekki komið í leitirnar enn, þrátt fyrir eftirgrennslan. Á vef Veiðisafnsins er rætt við Steinþór Stefánsson, barnabarn Steinþórs byssusmiðs, og segir hann að aldrei hafi verið farið leynt með að afi hans smíðaði byssur. „Ég dáðist að handverki hans sem krakki. Hann var lunkinn, sá gamli. Þetta var allt handunnið. Ég heyrði að hann hefði unnið hlaupin og aðra járnsmíði í Vélsmiðjunni Héðni. Þetta voru aðallega haglabyssur en afi smíðaði líka haglaskammbyssur og kallaði þær refabyssur,“ segir Steinþór sem fékk byssur afa síns frá Halldóri föðurbróður sínum, sem hafði erft þær frá föður sínum. Steinþór segir að Halldór hafi óskað eftir því að byssurnar færu á safn, helst allar saman, og það mun einnig hafa verið ósk Steinþórs byssusmiðs. Fimm skammbyssur Skammbyssur Eiríks Haraldssonar, sem einnig verða sýndar á byssusýningu Veiðisafnsins, segir Páll vera sjaldséða gripi og listasmíði. Þær eru af hlaupvíddinni .357 Mag og sagðar nákvæm eftirlíking af Colt Single Action Army marghleypu frá árinu 1873. Colt-verksmiðjurnar bandarísku hönnuðu marghleypuna fyrir bandarísk stjórnvöld árið 1872 og var hún aðalskammbyssa bandarískra hermanna árin 1873-1892. Hún var líka vinsæl hjá lögreglu, bændum, kúrekum og útlögum í villta vestrinu og víðar um heim. Auk skammbyssnanna hefur Eiríkur einnig smíðað nokkrar haglabyssur. Byssur Steinþórs eru listasmíði og einstakar í sinni röð. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Einstakar haglabyssur sýndar um helgina Skjótt skipast veður í lofti hjá Trump Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Askja heldur rafbílasýningu Varpaði ljósi á framtíð Slots hjá Liverpool Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli Vara við árásum á hafnir við Hormússund Engar ákvarðanir teknar um sjónvarpshlutann Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Einstakar haglabyssur sýndar um helgina Skjótt skipast veður í lofti hjá Trump Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Askja heldur rafbílasýningu Varpaði ljósi á framtíð Slots hjá Liverpool Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ósatt, bara lygar“ Ferðamenn lentu á kafi í vatni Vatnsból í hættumat Vara við árásum á hafnir við Hormússund Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu

Share this article