Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Halli Bangsa bíður eftir stóra þorskinum

Read Full Article →

„Við vorum undir Krýsuvíkurbjarginu, þetta voru rúm átta tonn sem við fengum,“ segir Haraldur Björn Björnsson, Halli Bangsa, skipstjóri á Gísla Súrssyni GK, þegar rætt er við hann fyrir hádegi í gær. Aflinn sem áhöfn Gísla Súrssonar kom með til heimahafnar í Grindavík var að sögn Haraldar 70 til 80 prósent þorskur og síðan ýsa og langa. Kemur kannski um miðja næsta viku „Ég kvarta ekki,“ segir Haraldur um aflabrögðin. Hann bendir á að nú hafi verið það sem hann kallar loðnuástand og að það hafi sín áhrif. Til dæmis sé þorskurinn ekkert sérstaklega vænn. „Það vantar stóra þorskinn, hann er bara saddur. Hann er þarna en hann er bara ekki að taka,“ segir Haraldur og játar því að stóri þorskurinn sé eiginlega búinn að éta yfir sig af loðnu. „En hann kemur aðeins seinna. Kannski um miðja næsta viku.“ Tvær áhafnir um Gísla Að því er Haraldur segir hefur áhöfnin á systurskipinu Vésteini GK undanfarið róið á móti áhöfn hans sjálfs á Gísla Súrssyni. „Þeir eru búnir að vera meirihluta marsmánaðar. Þetta er vegna þess að Gísli bilaði í september og október og við í Gíslaáhöfninni tókum um tvö hundruð tonn á Vésteini,“ segir Haraldur og útskýrir að vegna þess að kvótinn á Vésteini hafi klárast þurfi áhafnirnar tímabundið að skiptast á að róa á Gísla. Sjór í vélarrúmið „Kvótinn er búinn á Vésteini og allur kvótinn er á Gísla. Þeir þurfa að taka á Gísla svo það þurfi ekki að fara að færa á milli. Þá er Vésteinsáhöfnin að róa á Gísla og er búin að vera að því síðan í byrjun janúar,“ segir Haraldur, sem í gær var sjálfur að koma úr sínum fyrsta róðri í mars. „Til þess að geta fært á milli þarf að ná veiðiskyldunni. Þetta er bara tímabundið og ég giska á að þetta verði næsta mánuð líka og þá verður þetta komið í eðlilega skorður,“ bætir Haraldur við. Bilaði eiginlega allt sem gat bilað Varðandi áðurnefnda bilun hjá Gísla Súrssyni í haust segir Haraldur hana hafa orðið þegar sjór komst í vélarrúmið og fór upp á miðja vél. „Það varð keðjuverkun. Það fór vélartölvan og allar dælur; það bilaði eiginlega allt sem gat bilað af því sem fór á kaf í sjó,“ segir hann. Sjórinn hafi byrjað að koma inn þegar leka fór með hliðarskrúfunni. Algjör óheppni „Svo átti að laga það daginn eftir en þá biluðu báðar lensurnar um nóttina. Þetta gerðist svo hratt og var algjör óheppni. Vélin er stafræn og það fóru allir alternatorar og allt rafmagnstengt sem fór á kaf. Tjónið var svona sjö, átta milljónir króna,“ segir Haraldur um það mál. Þegar rætt er við Harald í gær áætlaði hann að leggja upp í annan túr síðdegis. „Svo kemst ég kannski næst eftir helgi. Það er að koma önnur lægð,“ segir hann. Þeir hafi komið snemma í land í gær til að forðast norðanstorm á miðunum. „Það er skítaveður á þeim sem eru úti núna. Þess vegna er ég snemma á ferðinni og ætla að leyfa þessu að lægja.“ Mars oft leiðinlegur Hvað veðrið í vetur snertir segir Haraldur janúar og febrúar vissulega hafa verið býsna góða. „Ég er búinn að vera lengi í þessu og ætti að þekkja þetta,“ segir Haraldur, sem verið hefur skipstjóri í tuttugu ár. „Janúar og febrúar voru óvenjulega góðir en svo er mars búinn að vera ein bræla og ætlar að vera mjög leiðinlegur eins og hann getur oft verið. Þetta jafnast út.“

Share this article