Helgi Bjartur var ákærður fyrir að hafa brotist inn á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði að næturlagi í september í fyrra, farið inn í svefnherbergi tíu ára drengs sem þar býr og brotið á honum kynferðislega. Helgi Bjartur og móðir drengsins eru fyrrum samstarfsfélagar og hann býr í grennd við fjölskylduna. Afplánaði dóminn í gæsluvarðhaldi Helgi Bjartur var í dag sakfelldur fyrir húsbrot og kynferðislega áreitni gegn barni, en ekki nauðgun gegn barni líkt og honum er gefið að sök í ákæru. Hann var dæmdur til tólf mánaða fangelsisvistar og þar af eru níu mánuðir bundnir skilorði. Helgi Bjartur var handtekinn í september en var sleppt úr haldi þremur dögum síðar. Eftir að rannsókn lauk í desember í fyrra fór héraðssaksóknari fram á gæsluvarðhald yfir Helga Bjarti. Þeirri beiðni var hafnað í Héraðsdómi en Landsréttur sneri niðurstöðunni við og Helgi hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan í janúar. Hann hefur því þegar afplánað þá þrjá mánuði sem hann á að sitja af sér og hefur verið sleppt úr haldi.