Helga Bjarti Þorvarðarsyni, sem var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að áreita barn kynferðislega, hefur ítrekað verið hótað lífláti eftir umfjöllun um mál hans í fjölmiðlum. Lögmaður hans segir mikilvægt að umfjöllun sé byggð á staðreyndum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Oddgeiri Einarssyni, lögmanni Helga Bjarts sem var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að áreita barn kynferðislega og fyrir húsbrot. Helgi Bjartur braust inn á heimili fyrrverandi samstarfskonu sinnar í september í fyrra og fór inn í svefnherbergi tíu ára sonar hennar og áreitti hann kynferðislega. Rætt var við foreldra drengsins í Kastljósi í nóvember og aftur í síðustu viku eftir að dómur féll. Helgi Bjartur var ekki nafngreindur í fréttum RÚV fyrr en hann sendi frá sér yfirlýsingu undir nafni í janúar. Helgi Bjartur var sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni en sýknaður af alvarlegri ákæruliðum því dómurinn taldi að fara þyrfti varlega í að draga ályktanir af framburði drengsins. Helgi Bjartur hafnaði ásökunum um að hafa brotið á drengnum en bar fyrir sig minnisleysi á verknaðarstundu. Í yfirlýsingu sem lögmaður hans sendi fjölmiðlum í dag er gagnrýnt að foreldrar drengsins hafi farið með rangfærslur í viðtali í síðustu viku og haldið því fram að skjólstæðingur hans hefði káfað á kynfærum barnsins. Í dómnum segir að með tilliti til sönnunargagna hafi ekki verið hægt að fullyrða að hann hafi gert það. Lögmaðurinn segir umfjöllun fjölmiðla hafa verið villandi og gagnrýnir að ekki hafi verið fjallað um þann möguleika að skjólstæðingur hans hafi drukkið sig í óminnisástand, endað á heimili samstarfskonu sem hann hefði verið í samskiptum við fyrr um nóttina, tekið í buxnastreng manneskju sem lá í rúmi og horfið á brott um leið og hann hefði áttað sig á því að það væri barn. „Þrátt fyrir að öll atburðarás kvöldsins, sem og frásögn brotaþola, geti stutt þá mögulegu atburðarás hafa fjölmiðlar ekki greint frá þeim staðreyndum málsins,“ segir í yfirlýsingunni, og að æskilegast væri að þeir sem vildu móta sér skoðun á málinu læsu dóminn í heild sinni.