Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.4.2026 | 11:47 Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Dómur félli í málinu þann 15. apríl. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Lögmaður Helga Bjarts Þorvarðarsonar, sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn barni, segir fjölmiðlaumfjöllun um málið hafa verið villandi og einhliða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu eftir að dómur féll í málinu í Héraðsdómi Reykjaness 15. apríl. Skjólstæðingur hans var sýknaður af alvarlegustu ákæruatriðum en sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni. Frétt af mbl.is Helgi Bjartur dæmdur í 12 mánaða fangelsi Deilt um atburðarás kvöldsins Í yfirlýsingunni, sem kemur frá Oddgeiri Einarssyni lögmanni, er því haldið fram að aðrar skýringar á atvikum hafi legið fyrir en komið hafi fram í fjölmiðlum en tilgangur þess að senda frá sér þessa yfirlýsingu sé til kominn vegna fullyrðinga sem fram komu í frétt á RÚV fyrir helgi. Segir Oddgeir þar að foreldrar hafi í viðtali fullyrt að skjólstæðingur hans hafi káfað á kynfærum drengs en gögn málsins segi annað. Þar er vísað til þess að maðurinn hafi verið mjög ölvaður, farið inn á heimili fyrrverandi samstarfskonu og ruglast á herbergjum. Segir Oddgeir að um atvik sem vísað er til í dómi hafi brotaþoli eða drengurinn vaknað við að Helgi hefði komið inn í herbergið og „reynt að draga niður náttbuxur hans“. Þá segir jafnframt að maðurinn hafi „séð að um barn var að ræða, beðist afsökunar og farið út“. Í yfirlýsingunni er bent á að brotaþoli hafi einnig lýst því að maðurinn hafi mögulega haldið að hann væri móðir barnsins og verið að fara upp í rúm til hennar, en farið í rangt herbergi. Verjandinn bendir á að framburður drengsins hafi í sumum atriðum verið breytilegur og að hluti þeirra alvarlegu atriða sem lýst var í upphafi hafi ekki fengið stoð í gögnum málsins. Frétt af mbl.is Meintur barnaníðingur sendir frá sér yfirlýsingu DNA og sönnunargögn Eina lífsýnið sem fannst var DNA á buxnastreng brotaþola og segir lögmaðurinn það lífssýnið að líkindum af höndum Helga. Samkvæmt yfirlýsingunni bendir það til þess að snerting hafi átt sér stað þar, en engin önnur líkamleg sönnunargögn hafi stutt alvarlegri ásakanir. Verjandinn telur að framburður brotaþola sjálfs styðji að maðurinn hafi hætt um leið og hann áttaði sig á að um barn væri að ræða, sem veki spurningar um ásetning. Frétt af mbl.is Faðir í Hafnarfirði ákærður fyrir að nauðga dreng Gagnrýni á fjölmiðla Sérstaklega er gagnrýnd umfjöllun RÚV þar sem gefið er í skyn að maðurinn hafi framið alvarlegri brot en dómurinn staðfesti. Hvetur hann þá sem vilja kynna sér málið til að lesa dóminn og gagnrýnir meðal annars verkefnastýru Barnaheilla sem hann segir að hafi tjáð sig um málið af vanþekkingu á staðreyndum málsins. Afleiðingar fyrir fjölskyldu Í yfirlýsingunni kemur fram að fjölskylda Helga Bjarts hafi orðið fyrir hótunum og að persónuupplýsingum hafi verið dreift á netinu. „Skjólstæðingur minn áttar sig fyllilega á því að frumorsökin fyrir þeirri vanlíðan sem þetta mál hefur valdið öllum sem því tengjast er hans með því að hafa farið í ölæði inn á heimili fjölskyldu fyrrum samstarfskonu sinnar sem hann áleit vera vinkonu sína,“ segir í yfirlýsingunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Ótrúlega erfitt án hennar“ Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Stórfelld líkamsárás á Akureyri: Tveimur sleppt úr haldi Ítalskur draumur: Sunneva og Birta sýna hvernig á að njóta Mílanó Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Þurfum að tuttugufalda hraða uppbyggingar hjúkrunarrýma Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Loka Hormússundi aftur Nýta þarf orkuna á svæðinu Störfum fjölgar hjá hinu opinbera „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Óska eftir launalausum liðsauka Hitinn gæti náð 14 stigum Skýringar á þýsku sturtunum með miklum ólíkindablæ Gæti tafist fram yfir kosningar Störfum fjölgar hjá hinu opinbera 12 mánaða börn fá leikskólapláss í haust Borgarlínan gengur af Suðurlandsbrautinni dauðri Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Nýjast á mbl.is » „Ótrúlega erfitt án hennar“ Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Stórfelld líkamsárás á Akureyri: Tveimur sleppt úr haldi Ítalskur draumur: Sunneva og Birta sýna hvernig á að njóta Mílanó Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Þurfum að tuttugufalda hraða uppbyggingar hjúkrunarrýma Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið sýnir þegar skotið var á skipið Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Störfum fjölgar hjá hinu opinbera Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Óska eftir launalausum liðsauka Hitinn gæti náð 14 stigum Skýringar á þýsku sturtunum með miklum ólíkindablæ Gæti tafist fram yfir kosningar Störfum fjölgar hjá hinu opinbera 12 mánaða börn fá leikskólapláss í haust Borgarlínan gengur af Suðurlandsbrautinni dauðri Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi

Share this article