Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Sérstaklega alvarlegt“ en ekki nauðgun

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.4.2026 | 13:55 „Sérstaklega alvarlegt“ en ekki nauðgun Maðurinn var sýknaður af alvarlegasta brotinu en sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Setja bókamerki Héraðsdómur Reykjaness hefur birt 12 mánaða fangelsisdóm yfir Helga Bjarti Þorvarðarsyni sem dæmdur var fyrir húsbrot, kynferðislega áreitni gegn barni og fyrir að hafa greitt fyrir vændi. Líkt og fram hefur komið eru níu mánuðir refsingarinnar skilorðsbundnir til tveggja ára, en þrír mánuðir óskilorðsbundnir. Dómurinn var birtur í dag. Svaf á rishæð Málið varðar atvik aðfaranótt 14. september 2025 þegar maðurinn fór í heimildarleysi inn í íbúðarhús þar sem 10 ára drengur svaf í herbergi á rishæð. Samkvæmt niðurstöðu dóms vaknaði drengurinn við að maður var kominn upp í rúm til hans, snerti hann á líkamanum og reyndi að toga niður af honum náttbuxurnar. Drengurinn fór í kjölfarið niður til foreldra sinna og sagði frá. Foreldrarnir höfðu samband við lögreglu en á meðan kom maðurinn aftur að húsinu og reyndi að komast inn á ný. Foreldrarnir komu í veg fyrir það og hljóp hann á brott. Móðir drengsins taldi sig þekkja manninn sem fyrrverandi samstarfsmann sinn. Við rannsókn málsins fannst DNA-snið ákærða meðal annars á streng náttbuxna drengsins. Dómurinn taldi það styðja að hann hefði snert drenginn og reynt að draga niður um hann buxurnar. Frétt af mbl.is Helgi Bjartur dæmdur í 12 mánaða fangelsi Hlutar frásagnar þóttu ekki studdir gögnum Dómurinn fór ítarlega yfir framburð drengsins en taldi að ákveðnir þættir í frásögn hans fengju ekki stoð í öðrum sönnunargögnum. Sérstaklega var vísað til þess að drengurinn hafði í fyrstu lýst því að hann hefði séð hvítt efni koma úr getnaðarlim mannsins og að það hefði farið á rúmið og á líkama hans. Við rannsókn fundust þó hvorki sæðismerki á rúmfatnaði, náttfötum né á drengnum sjálfum. Dómurinn taldi því ekki unnt að byggja á þeim þætti frásagnarinnar. Verið að lýsa því sem hann taldi hafa gerst Einnig þótti framburður hans óstöðugur um alvarlegustu atriðin, þar á meðal hvort maðurinn hefði reynt að þröngva lim sínum inn í endaþarm hans, hvort snerting hefði átt sér stað á kynfærum og hversu lengi atvikið stóð yfir. Í dómnum segir að ekki sé hægt að útiloka að drengurinn hafi að hluta verið að lýsa því sem hann taldi að hefði gerst áður en hann vaknaði. Þá taldi dómurinn einnig athyglisvert að í frásögn drengsins kæmu fram atriði um að maðurinn hefði ætlað í rúm móður hans. Dómurinn taldi ósennilegt að barn á hans aldri hefði sjálft sett fram þá skýringu nema hún hefði áður verið rædd við hann, þó ekki lægi fyrir hver hefði gert það. Af þessum sökum sagði dómurinn að fara yrði varlega í að byggja á þeim hlutum framburðarins sem ekki fengju stuðning í öðrum gögnum málsins. Frétt af mbl.is Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Snert maga, brjóstkassa og rass Þrátt fyrir framangreint taldi dómurinn sannað að maðurinn hefði farið óboðinn inn á heimilið, farið upp í rúm drengsins, dregið niður um hann buxurnar og snert hann á maga, brjóstkassa og rassi. Sú háttsemi var talin varða við kynferðislega áreitni gegn barni, en ekki nauðgun eins og ákært var fyrir. Dómurinn taldi ekki sannað að um „önnur kynferðismök“ í skilningi hegningarlaga hefði verið að ræða. Alvarlegt brot og veruleg áhrif á drenginn Við ákvörðun refsingar lagði dómurinn áherslu á að brotið hefði verið framið gegn barni sem svaf á heimili sínu, sem væri sérstaklega alvarlegt. Fyrir dómi lá sálfræðivottorð þar sem fram kom að drengurinn sýndi einkenni áfallastreituröskunar í kjölfar atviksins. Þar kom fram að hann hefði meðal annars glímt við kvíða, svefnvanda, forðun og erfiðleika í daglegu lífi eftir brotið. Játaði vændiskaup Maðurinn játaði einnig að hafa greitt fyrir vændi sömu nótt og var sakfelldur fyrir þann ákærulið. Auk fangelsisrefsingarinnar var manninum gert að greiða drengnum 1,5 milljónir króna í miskabætur. Foreldrum hans voru dæmdar 300 þúsund krónur í bætur auk málskostnaðar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Patrick Muldoon látinn 57 ára „Sérstaklega alvarlegt“ en ekki nauðgun Liðsfélagar slógust eftir leik Dr. Gunni brá á leik fyrir börnin Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Var umsóknin um aðild að ESB í samræmi við umboð Alþingis? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Mannskæðasta skotárás í Bandaríkjunum í tvö ár Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur 300 ferðir á spítalann Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Óska eftir launalausum liðsauka Hitinn gæti náð 14 stigum Skýringar á þýsku sturtunum með miklum ólíkindablæ Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Gæti tafist fram yfir kosningar Störfum fjölgar hjá hinu opinbera 12 mánaða börn fá leikskólapláss í haust Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Nýjast á mbl.is » Patrick Muldoon látinn 57 ára „Sérstaklega alvarlegt“ en ekki nauðgun Liðsfélagar slógust eftir leik Dr. Gunni brá á leik fyrir börnin Lyfja vill kaupa apótekið af Einari Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Var umsóknin um aðild að ESB í samræmi við umboð Alþingis? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Mannskæðasta skotárás í Bandaríkjunum í tvö ár Störfum fjölgar hjá hinu opinbera Óska eftir launalausum liðsauka Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Óska eftir launalausum liðsauka Hitinn gæti náð 14 stigum Skýringar á þýsku sturtunum með miklum ólíkindablæ Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Gæti tafist fram yfir kosningar Störfum fjölgar hjá hinu opinbera 12 mánaða börn fá leikskólapláss í haust Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi

Share this article