Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

55 af 84 íbúðum fóru í útleigu

Read Full Article →

Viðskipti | Morgunblaðið | 4.3.2026 | 13:30 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Hringbraut 116 er í þremur byggingum, þar af er ein við Hringbraut og tvær við Sólvallagötu. Morgunblaðið/Eggert Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Vilja aukna íbúðauppbyggingu á landsbyggðinni Hægir á byggingu íbúða næstu árin Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Beint: Mánaðarskýrsla HMS kynnt 74% íbúða seldust á undirverði » Fleiri tengdar fréttir Fimmtíu og fimm íbúðir af alls áttatíu og fjórum í fjölbýlishúsinu á Hringbraut 116, gegnt JL-húsinu, eru komnar í útleigu, að sögn Þórarins Arnars Sævarssonar, eins eigenda Steindórs ehf., sem er eigandi að Steindórsreit. Eignir sem eru í útleigu verða ekki auglýstar til sölu á leigutíma að sögn Þórarins. 28 eignir eru seldar og ein er auglýst til sölu. Sala á eigninni gekk til baka þar sem kaupandi náði ekki að selja sína eign að sögn Þórarins. Kvaðir í skilmálum Félagsbústaðir keyptu að sögn eigandans tíu af íbúðunum tuttugu og átta, bæði vegna kvaða í skipulagsskilmálum og svo í frjálsum samningum til viðbótar. Af þessum tíu íbúðum er ein íbúð nýtt undir hefðbundna starfsemi Félagsbústaða, átta íbúðir eru fyrir lögblinda einstaklinga og ein íbúð er fyrir starfsmenn sem þjónusta skjólstæðinga Félagsbústaða í húsinu. Hringbraut 116 er í þremur byggingum eins og Þórarinn útskýrir. Þar af er ein við Hringbraut og tvær við Sólvallagötu. Fjögur atvinnurými eru í byggingunni og snúa út að Hringbraut. Í bílakjallara eru 86 bílastæði sem þjónusta húsið. Bakarí, hermar og gallerí Þórarinn segir að af atvinnurýmunum fjórum séu þrjú bil þegar komin í útleigu. Bakarí kemur í eitt bilanna en beðið er eftir starfsleyfi. Búið er að opna gallerí í einu bili og þá hefur Ggolf.is verið opnað með tveimur golfhermum í því þriðja. Þegar sala hófst voru atvinnurýmin auglýst til leigu en íbúðir voru ýmists boðnar til sölu eða til leigu. Eins og Þórarinn útskýrir kom í ljós í október 2024 þegar eignirnar voru auglýstar til sölu að einstaklingar voru ekki að standast greiðslumat eftir að Seðlabankinn herti viðmiðunarreglur varðandi greiðslumöt einstaklinga. „Frá því í október 2024 hefur enginn einstaklingur staðist greiðslumat vegna kaupa hjá okkur, sem býr til ákveðinn ómöguleika. Því var tekin ákvörðun um að bjóða eignir jafnframt til leigu,“ útskýrir Þórarinn. Hann segir að fólk sem er að kaupa sína fyrstu íbúð standist gjarnan greiðslumat bankanna en ekki skilmála Seðlabanka Íslands þrátt fyrir að eiga margt hvert töluvert eigið fé. „Reglur Seðlabankans miða að því að hægja á íbúðamarkaði og þetta útspil hefur mikil áhrif á sölu nýbygginga. Þetta getur virkað ágætlega til skemmri tíma en veldur miklu ójafnvægi til lengri tíma. Á meðan þessi staða er uppi þá munum við ekki íhuga að hefja uppbyggingu annars staðar.“ Þórarinn bendir á að reiknaður kaupmáttur í landinu hafi aukist jafnt og þétt í mörg ár. Sparnaður sé að aukast en samt lækki hlutfall þeirra sem búa í eigin húsnæði jafnt og þétt. Skilur ekki áherslu Þórarinn kveðst ekki skilja þá áherslu sem virðist innbyggð í kerfið að halda fólki á leigumarkaði í stað þess að gera fólki kleift að eignast eigið húsnæði og byggja þar upp sparnað. Þá finnst honum sérstakt að bæta við viðbótarskilyrðum varðandi lántöku sem takmarka kaupgetu einstaklinga á tíma þegar vextir eru háir, og hafa rýmri skilyrði til lántöku þegar vextir eru lægri. „Það virðist vera ógjörningur að viðhalda jafnvægi á íbúðarmarkaði yfir lengra tímabil,“ segir Þórarinn að endingu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Vilja aukna íbúðauppbyggingu á landsbyggðinni Hægir á byggingu íbúða næstu árin Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Beint: Mánaðarskýrsla HMS kynnt 74% íbúða seldust á undirverði » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Markmiðið að veikja hernaðarmátt Írana Sigurður Már Jónsson Lögmæti og fólk í hlekkjum harðstjóranna Fleira áhugavert Evrópa komin í ógöngur með regluverk Voru að telja atkvæði í kjöri um nýjan leiðtoga Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Norðmaður féll í Íran Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Skoða risavirkjun á Grænlandi Hrafn ráðinn framleiðslustjóri Gosfélagsins Hlutabréfavísitölur falla í Bandaríkjunum Hillerup frá Microsoft til Lucinity Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand Beint: Ársfundur Landsvirkjunar Knútur nýr ráðgjafi hjá Syndis S4S tekur formlega við Lindex og opnar netverslun Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 Skoða risavirkjun á Grænlandi Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Hlutabréfavísitölur falla í Bandaríkjunum Beint: Ársfundur Landsvirkjunar Knútur nýr ráðgjafi hjá Syndis S4S tekur formlega við Lindex og opnar netverslun Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 75% virkjuðu viðbragðsáætlun Hagnaður Nova 239 milljónir á fjórða ársfjórðungi Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Andri lætur af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar Skoða risavirkjun á Grænlandi 21 milljarðs gjaldþrot Play Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Cabin kaupir Hótel Laka Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand S4S tekur formlega við Lindex og opnar netverslun Advania kaupir Evolv Pistlar » Sigurður Már Jónsson Markmiðið að veikja hernaðarmátt Írana Sigurður Már Jónsson Lögmæti og fólk í hlekkjum harðstjóranna Fleira áhugavert Norðmaður féll í Íran Ómetanlegt að búa að sterkum auðlindum Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Óljóst hvort dagarnir verði bættir upp Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Skoða risavirkjun á Grænlandi Hrafn ráðinn framleiðslustjóri Gosfélagsins Hlutabréfavísitölur falla í Bandaríkjunum Hillerup frá Microsoft til Lucinity Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand Beint: Ársfundur Landsvirkjunar Knútur nýr ráðgjafi hjá Syndis S4S tekur formlega við Lindex og opnar netverslun Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 Skoða risavirkjun á Grænlandi Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Hlutabréfavísitölur falla í Bandaríkjunum Beint: Ársfundur Landsvirkjunar Knútur nýr ráðgjafi hjá Syndis S4S tekur formlega við Lindex og opnar netverslun Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 75% virkjuðu viðbragðsáætlun Hagnaður Nova 239 milljónir á fjórða ársfjórðungi Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Andri lætur af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar Skoða risavirkjun á Grænlandi 21 milljarðs gjaldþrot Play Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Cabin kaupir Hótel Laka Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand S4S tekur formlega við Lindex og opnar netverslun Advania kaupir Evolv

Share this article