Innlent | mbl | 24.2.2026 | 14:23 Vilja aukna íbúðauppbyggingu á landsbyggðinni Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ásamt Hermanni Jónassyni, forstjóra HMS, og Jóni Birni Hákonarsyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga sem allir undirrita viljayfirlýsinguna. Með þeim er Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar sem einnig hélt erindi á opnum fundi á vegum HMS þar sem yfirlýsingin var kynnt. Ljósmynd/Stjórnarráðið Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Hægir á byggingu íbúða næstu árin Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Beint: Mánaðarskýrsla HMS kynnt 74% íbúða seldust á undirverði Svartsýni í könnun SI um markaðinn » Fleiri tengdar fréttir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um húsnæðisuppbyggingu um allt land. Að því er segir í tilkynningu er markmiðið að styðja við fjölbreyttar húsnæðislausnir í byggðakjörnum utan höfuðborgarsvæðisins og áhersla lögð á að styðja við byggingu íbúðarhúsnæðis fyrir alla hópa samfélagsins í samræmi við þá íbúðaþörf sem húsnæðisáætlanir sveitarfélaganna gera ráð fyrir. „Samstarf milli opinberra aðila er forsenda öflugrar húsnæðisuppbyggingar um land allt,“ er haft eftir Ragnari í tilkynningunni. „Markmiðið með viljayfirlýsingunni er að auka aðgengi fyrstu kaupenda á landsbyggðinni að íbúðum sem falla undir hlutdeildarlán og efla leigumarkaðinn utan höfuðborgarsvæðisins. Hvort tveggja er afar mikilvægt. Einnig er mikilvægt að stuðla að uppbyggingu á svokölluðum köldum markaðssvæðum.“ Mæta þörfum tekjulægri fyrstu kaupenda á landsbyggðinni Yfirlýsingin var kynnt á Akureyri í morgun. Ætlunin er að hlutdeildarlán geti nýst víðar og að efla leigumarkaðinn. Ríkisstjórnin hefur það að leiðarljósi að styrkja hlutdeildarlánakerfið fyrir fyrstu kaupendur. Leitað verður leiða til að mæta þörfum tekjulægri fyrstu kaupenda á landsbyggðinni með því að fjölga þar íbúðum sem uppfylla skilyrði til lánveitingar hlutdeildarlána. Leitast verður við að gera samninga við uppbyggingaraðila í samræmi við breytt fyrirkomulag hlutdeildarlána sem tók gildi þann 1. janúar. Athuga hvort sveitarfélög geti unnið saman að rekstri leigufélaga Kannaðir verða möguleikar á að efla leigumarkaðinn á landsbyggðinni og athugað hvort og með hvaða hætti sveitarfélög geti unnið saman að rekstri eða samhæfingu leigufélaga, ýmist svæðisbundið eða á landsvísu. Þörf er á uppbyggingu innan almenna íbúðakerfisins víðs vegar um landið en þar er um að ræða leiguíbúðir ætlaðar þeim sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum og þar hafa biðlistar lengst undanfarin ár. Samhliða verður rýnt hvernig boðaðar breytingar ríkisstjórnarinnar á fjárhæðum stofnframlaga hafa áhrif á uppbyggingu utan höfuðborgarsvæðisins en slík framlög eru veitt til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum. Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Hægir á byggingu íbúða næstu árin Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Beint: Mánaðarskýrsla HMS kynnt 74% íbúða seldust á undirverði Svartsýni í könnun SI um markaðinn » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Samþykkja að birta skjöl um störf Andrews Lækka verð á offitulyfjum Stigin tekin af Hauki og félögum? Mette-Marit ekki með á afmælismynd konungs Jan Timman stórmeistari látinn Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fólk lítur á hendurnar á mér“ Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar Gullhúðun í nýju frumvarpi Kristrún: Ótrúlega sársaukafullt stríð Mest lesið Í gær Í vikunni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ 40 milljarða búhnykkur „Minni kröfur, lélegri markmið. Það er því miður staðreynd“ Biðla til almennings að fóðra ekki fugla í görðunum „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Nýjast á mbl.is » Samþykkja að birta skjöl um störf Andrews Lækka verð á offitulyfjum Stigin tekin af Hauki og félögum? Mette-Marit ekki með á afmælismynd konungs Jan Timman stórmeistari látinn Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjögur ár í foraði stríðsins Varað við uppgangi glæpahópa í átján ár 40 milljarða búhnykkur Hver er myrkraprinsinn Mandelson? Mest lesið Í gær Í vikunni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ 40 milljarða búhnykkur „Minni kröfur, lélegri markmið. Það er því miður staðreynd“ Biðla til almennings að fóðra ekki fugla í görðunum „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar