Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vilja efla leigumarkað á landsbyggðinni og gera hlutdeildarlán aðgengilegri

Read Full Article →

Félags- og húsnæðismálaráðherra vill efla leigumarkað á landsbyggðinni og að hlutdeildarlán nýtist betur utan höfuðborgarsvæðisins. Rýnt var í húsnæðismarkaðinn á Norðurlandi á fundi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Akureyri í morgun. „Viljayfirlýsingin snýst um uppbyggingu á landsbyggðinni, það hefur verið og verður sérstök áhersla hjá okkur að einblína ekki bara á höfuðborgarsvæðið þegar kemur að íbúðauppbyggingu heldur líka öllu landinu“, sagði Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, að loknum fundinum í morgun. Þá mættu köld svæði ekki verða út undan í uppbyggingunni. Á fundinum var rýnt í stöðu íbúðauppbyggingar á Norðurlandi sérstaklega, stöðuna, stefnu og framtíðarhorfur. Skýrt kom fram í greiningu HMS að húsnæðismarkaðurinn á Akureyri hefur skorið sig úr á Norðurlandi, á meðan hann hafi talist tiltölulega „heitur“, þá hafi uppbyggingin verið mjög takmörkuð fjær Eyjafirðinum, það teljist kaldari svæði. Nýta hlutdeildarlán utan borgarinnar og efla leigumarkaðinn Í viljayfirlýsingu sem undirrituð var af ráðherranum, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga og forstjóra HMS, er lögð áhersla á að hlutdeildarlán nýtist víðar, en einnig að efla eigi leigumarkað á landsbyggðinni. Samstarf milli opinberra aðila verði lykillinn að því. „Sem snýr að mun meira samstarfi en áður, bæði við sveitarfélögin og síðan þau félög sem eru innan HMS, Bríeti og Brák og viljum eiga síðan samstarf við aðra uppbyggingar aðila eins og Bjarg og Blæ og Brynju, búseturéttarfélögin. “

Share this article