Innlent | mbl | 28.4.2026 | 14:05 Ekki kosningabrella Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri að loknum blaðamannafundi í morgun. mbl.is/Karítas Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Þetta leynist í öðrum húsnæðispakka stjórnvalda Ætla að byggja 1.200-1.400 íbúðir á ríkislóðum Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð » Fleiri tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Enn deilt um mál sem klauf sveitarstjórnina Höfnin er lífæð bæjarfélagsins „Einkennilegt framlag í kosningabaráttuna“ „Óásættanlegt að fólk þurfi að óttast að vera utandyra“ Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast » Fleiri tengdar fréttir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir það ekki kosningabrellu að kynna uppbyggingu 1.200–1.400 íbúða á lóðum ríkisins í Reykjavík hálfum mánuði fyrir sveitarstjórnarkosningar. Uppbyggingin er hluti af öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri kynntu í dag. Íbúðirnar verða byggðar upp á lóðum ríkisins við Borgartún, Grensásveg, efri hluta Laugavegar, Laugarnesveg, Seljaveg og austan Korpúlfsstaða. Frétt af mbl.is Ætla að byggja 1.200-1.400 íbúðir á ríkislóðum Minni íbúðir í Laugarnesi Greint var frá því í síðustu viku að fjöldi óseldra íbúða á markaði væri í sögulegu hámarki og að þær íbúðir sem hafa verið byggðar undanfarið mæti margar hverjar ekki óskum neytenda. Spurð hvernig það verði tryggt að það verði ekki raunin með íbúðirnar sem nú stendur til að reisa segir Heiða: „Það á auðvitað eftir að gera skipulagslýsingar og deiliskipulag fyrir þessa reiti. Þetta er í rauninni ákveðið fyrsta skref þar sem við erum að ákveða að fara í þessa vinnu saman. En ég myndi halda að til dæmis það sem þeir sjá fyrir sér í Laugarnesinu séu minni íbúðir heldur en kannski hafa verið að byggjast upp. Þess vegna er fjöldinn þar örlítið hærri heldur en gert hefur verið ráð fyrir undanfarið.“ Borgarstjóri og fjármálarðáðherra voru kát með áfangann. mbl.is/Karítas Bundin af samningsmarkmiðum borgarráðs Þú talar um að það eigi eftir að skipuleggja þessi svæði en gerið þið ráð fyrir að eitthvað ákveðið hlutfall af þessum ríflega þúsund íbúðum verði hugsað fyrir fyrstu kaupendur og efnaminni einstaklinga? „Það eru í það minnsta 20% á öllum samningunum og svona sirka að jafnaði 20-25%.“ Í kynningu sinni á blaðamannafundinum talaði Heiða um að borgin hefði unnið að því að hefja uppbyggingu sem þessa lengi en að samningaviðræðurnar við ríkið hefðu aldrei náð jafn langt og nú. Spurð af hverju það hafi ekki verið hægt að ráðast í þessa uppbyggingu fyrr segir Heiða: „Ég er auðvitað bara bundin af samningsmarkmiðum borgarráðs sem að fela í sér þetta óhagnaðardrifna húsnæði, forkaupsrétt félagsbústaða og 5% leigu í almannarými og fleira sem að kannski var ekki efsti óskalisti hjá ríkinu til að byrja með. Okkar áhersla er fyrst og fremst að fá fjölbreytt húsnæði á markaðinn. Og fyrir okkur er það bara mjög mikilvægt að þetta sé óhagnaðardrifið líka. Þannig að við séum að sjá stúdenta, við séum að sjá tekjulægri fyrstu kaupendur og fólk sem er að leigja hjá verkalýðsfélögunum. Þarna koma fleiri lóðir inn sem hefur vantað og eins fyrir Félagsbústaði og okkur vantar það líka. Þannig að það er mjög gott að hafa þarna áætlanir um það.“ Frétt af mbl.is Þetta leynist í öðrum húsnæðispakka stjórnvalda Væri hægt að byggja fleiri íbúðir á kostnað bílastæða? Væri ekki hægt að ganga lengra en að byggja 1.200–1.400 íbúðir? „Ekki á þessum reitum. Það hefði ekki verið ráðlegt að okkar mati. En það er auðvitað eitt af því sem við vorum að ræða og borginni fannst það ekki ráðlegt,“ segir Heiða. Bílastæði hafa auðvitað verið eitt hitamálið þegar kemur að borgarskipulagi síðustu misseri. Hefur verið rætt hvernig þeim verður háttað á þessum reitum? „Það er kannski hluti af þessum fjölda íbúða. Ef þú værir að koma bara fyrir íbúðum og engum bílastæðum þá væri auðvitað hægt að hafa þær fleiri en það er svona eitt af því sem þarf bara að skýra í skipulagsferlinu.“ Hefði viljað ganga frá þessu fyrr Á laugardaginn verða tvær vikur í að landsmenn gangi að kjörborðinu í sveitarstjórnarkosningum. Spurð hvort sú ákvörðun að kynna þessa uppbyggingu nú sé einhvers konar kosningabrella segir Heiða, sem skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í borginni: „Nei, alls ekki og í rauninni hefði ég viljað sjá þetta fyrir löngu, löngu síðan og ég held að það séu nokkur ár síðan svona umleitanir Reykjavíkurborgar til ríkisins um að byggja á þessum lóðum sem það heldur á innan borgarmarkanna hófust. Þannig að ég er bara glöð að ná því í höfn og það sýnir bara að það er allt hægt þegar fólk ákveður að láta það ganga.“ Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Þetta leynist í öðrum húsnæðispakka stjórnvalda Ætla að byggja 1.200-1.400 íbúðir á ríkislóðum Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð » Fleiri tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Enn deilt um mál sem klauf sveitarstjórnina Höfnin er lífæð bæjarfélagsins „Einkennilegt framlag í kosningabaráttuna“ „Óásættanlegt að fólk þurfi að óttast að vera utandyra“ Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kudrow hraunar yfir höfunda Friends „Mega alls ekki við því að missa Alisson“ Ekki kosningabrella Björgvin Halldórsson jarðsunginn Furstadæmin segja skilið við OPEC Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Blikastaðaland – forsendur Mosfellinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hrósað fyrir aðlögun að ESB Samgöngutafir eru rándýrar 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Mesta magn í sögunni Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Samgöngutafir eru rándýrar Enginn úr meirihlutanum mætti Dýrkeypt veikindahlutföll Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Kudrow hraunar yfir höfunda Friends „Mega alls ekki við því að missa Alisson“ Ekki kosningabrella Björgvin Halldórsson jarðsunginn Furstadæmin segja skilið við OPEC Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Blikastaðaland – forsendur Mosfellinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hrósað fyrir aðlögun að ESB Grunar að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var Dýrkeypt veikindahlutföll Friðarviðræður í járnum um sinn Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Samgöngutafir eru rándýrar Enginn úr meirihlutanum mætti Dýrkeypt veikindahlutföll Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“