Innlent | mbl | 28.4.2026 | 16:35 Segir að um sögulegan áfanga sé að ræða Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Karítas Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Ekki kosningabrella Þetta leynist í öðrum húsnæðispakka stjórnvalda Ætla að byggja 1.200-1.400 íbúðir á ríkislóðum Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki » Fleiri tengdar fréttir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir mikilvægt að ríkið sé, að minnsta kosti fyrst um sinn, framkvæmdaraðili í uppbyggingu þeirra 1.200–1.300 íbúða sem til stendur að reisa á ríkislóðum í Reykjavík næstu árin. Uppbyggingin er hluti af svokölluðum öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem Ragnar kynnti ásamt fjármálaráðherra og borgarstjóra í morgun. Megnið af fundinum fór í að kynna uppbyggingaráformin en lóðirnar sem um ræðir eru víða um Reykjavík: við Borgartún, Grensásveg, efri hluta Laugavegar, Laugarnesveg, Seljaveg og austan Korpúlfsstaða. Frétt af mbl.is Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Hagsmunir borgar og ríkis ekki endilega farið saman Í kynningu þinni talaðir þú um að þetta væri sögulegur áfangi. 1.400 íbúðir hafa áður verið reistar. Hvað er sögulegt við þessar 1.400 íbúðir? „Það sem er sögulegt við þetta er auðvitað uppbyggingarsamningur á milli ríkis og sveitarfélaga og það hefur gengið erfiðlega að ná slíkum samningum fram síðustu ár. Það hefur verið reynt og ekki margir slíkir samningar sem hafa verið gerðir síðustu áratugi eða áratugi,“ segir Ragnar. Af hverju er það? „Mjög líklega bara vegna þess að hagsmunir ríkisins hafa mögulega ekki farið saman við hagsmuni borgarinnar eða sveitarfélags eftir atvikum. Með uppbyggingarsamningum verða til ákveðin verðmæti þannig að það hefur bara einfaldlega ekki tekist. Sveitarfélögin hafa jú sett húsnæðisáætlanir og markmið og fleira en ekki svona físísk verkefni eins og við erum að fara í núna þar sem eru tilteknir reitir og ákveðnar eignir sem á að breyta í húsnæði.“ Frétt af mbl.is Ekki kosningabrella Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri undirrituðu samningana á blaðamannafundinum og Ragnar Þór vottaði þá. Um var að ræða umfangsmikla samninga og því tók undirritunin hátt í 20 mínútur. mbl.is/Karítas Vonandi ekki fimm ár Ragnar segir að húsnæði hafi vantað á viðráðanlegu verði fyrir tekjuminni einstaklinga. Spurður hvernig það verði tryggt að þessi uppbygging mæti þörfum þess hóps segir hann: „Það eru kvaðir inni í samningum um hlutfall af leigu- og óhagnaðardrifnum íbúðum en það fer svolítið eftir hvaða samningar það eru og hvernig félagslega blöndunin er. Og það sem skiptir auðvitað mestu máli nú er að ríkið er framkvæmdaraðili allavega eins og komið er og getur stýrt því í hvaða fasa þessar framkvæmdir fara hverju sinni.“ Spurður hvenær búast megi við því að fyrstu íbúðirnar úr þessari uppbyggingu komi á markað segir Ragnar að erfitt sé að tjá sig um það. En eru það tvö ár, fimm ár eða tíu? „Það eru ekki tíu eða fimm ár. Ég vonast nú til að þetta verði nú hérna komið af stað mun hraðar og fyrr.“ Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Ekki kosningabrella Þetta leynist í öðrum húsnæðispakka stjórnvalda Ætla að byggja 1.200-1.400 íbúðir á ríkislóðum Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Rekinn og fékk tæplega milljarð í vasann Segir að um sögulegan áfanga sé að ræða Nemendur Brekkubæjarskóla Varðliðar umhverfisins „Sleggjumaðurinn“ játar pósthúsrán Orðaður við brottför frá Magdeburg Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Segir vöxt útgjalda ósjálfbæran Friðarviðræður í járnum um sinn Dýrkeypt veikindahlutföll Mest lesið Í gær Í vikunni 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Kristrún vill sjálf dæma Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Enginn úr meirihlutanum mætti Samgöngutafir eru rándýrar Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Rekinn og fékk tæplega milljarð í vasann Segir að um sögulegan áfanga sé að ræða Nemendur Brekkubæjarskóla Varðliðar umhverfisins „Sleggjumaðurinn“ játar pósthúsrán Orðaður við brottför frá Magdeburg Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þetta leynist í öðrum húsnæðispakka stjórnvalda Ekki kosningabrella Segir vöxt útgjalda ósjálfbæran Samgöngutafir eru rándýrar Mest lesið Í gær Í vikunni 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Kristrún vill sjálf dæma Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Enginn úr meirihlutanum mætti Samgöngutafir eru rándýrar Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“