Innlent | mbl | 22.3.2026 | 20:30 „Virðist pirra Kristrúnu óskaplega“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Kristrún Frostadóttir. Samsett mynd mbl.is/Eyþór/Karítas Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Lilja hvöss: „Hún tekur enga ábyrgð“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Áróður „Crybully-ríkisstjórnarinnar“ Kristrún kýs „já“ í ágúst Samfylking í aftursætinu og Inga Sæland í skottinu » Fleiri tengdar fréttir „Þetta virkar nú bara á mig sem hálfaumtilraun til þess að beina athyglinni frá pólitískum vandræðum Samfylkingarinnar,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, um orðræðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á flokksráðsfundi Samfylkingarinnar í gær. Í ræðu sinni á flokksráðsfundinum í gær skaut Kristrún föstum skotum á flokka stjórnarandstöðunnar og sagði t.a.m. hægriflokkana í andstöðunni hafa hlaupið frá miðjunni og út á jaðarinn. „Þetta er allt að renna saman. Jafnvel flokkar með glæsta sögu eins og Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, merkilegir flokkar á marga lund, sem gættu þess að fara aldrei of langt frá miðju stjórnmálanna en virðast núna sáttir með að enda í knippi með Miðflokki, alltaf á harðahlaupum á eftir því sem dreifist hraðast á TikTok þann daginn eða því sem fær flesta þumla á Facebook, og keppast við að úthúða okkur jafnaðarfólki og útiloka jafnvel samstarf við fólk eins og okkur! Það er dapurlegt að fylgjast með þessari þróun,“ sagði forsætisráðherrann. Frétt af mbl.is Kristrún kýs „já“ í ágúst Frétt af mbl.is Lilja hvöss: „Hún tekur enga ábyrgð“ „Evrópusambandsvegferðin“ pirri Kristrúnu mbl.is leitaði viðbragða Sigmundar Davíðs sem hafði þetta um málið að segja: „Þetta virkar nú bara á mig sem hálfaumtilraun til þess að beina athyglinni frá pólitískum vandræðum Samfylkingarinnar, hvort sem það snýr að því að [Kristrúnu] hefur algjörlega mistekist ætlunarverk sitt með efnahagslífið; vexti, verðbólgu, húsnæðismarkaðinn og annað, og er núna búin að lenda í vörn í hverju máli á eftir öðru sem hafa svona gengið gegn því sem Kristrún boðaði og ætlaði að gera með Samfylkinguna,“ segir Sigmundur og heldur áfram: „Í mörgum tilfellum virðist það hafa verið gert til þess að friðþægja samstarfsflokkana og stærsta málið af þeim toga er náttúrulega þessi Evrópusambandsvegferð Viðreisnar sem að virðist pirra Kristrúnu óskaplega að þurfa að svara fyrir. Hún lýsti því nú bara yfir að hún ætlaði ekki að tjá sig um málið í fyrstu umræðu á Alþingi og hefði líklega ekkert sagt um það yfir höfuð nema af því að hún var spurð um það í óundirbúnum fyrirspurnartímum og var þá bara með undanbrögð.“ Frétt af mbl.is Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Frétt af mbl.is Segir Kristrúnu ekki svara spurningum Veit ekki hver hún er Segir Sigmundur að því virðist vera sem „einhver mikill pirringur“ sé í Kristrúnu sem sé nú þess valdandi að hún reyni að beina athyglinni annað og reyna að „endurskilgreina“ stjórnarandstöðuflokkana. „[...] sem að í þessu tilviki er þá greinilega gert til að reyna að draga upp þá mynd að aðrir séu komnir út á einhvern jaðar þegar hún sjálf veit ekki hvar hún er eða hvert hún ætlar. Hún kemst að minnsta kosti hvergi.“ Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa rekið til vinstri Sigmundur segir stjórnmálin þó vissulega hafa breyst, en ekki með þeim hætti sem kom fram í ræðu Kristrúnar. „Þau hafa ekki færst mikið til hægri heldur hafa flokkar sem áður skilgreindu sig til hægri, eins og Sjálfstæðisflokkurinn, rekið þá til vinstri. Það sem fyrir nokkrum árum var bara kallað miðjustefna eða heilbrigðisskynsemi er núna í augum Samfylkingarinnar einhvers konar hægri jaðar.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Lilja hvöss: „Hún tekur enga ábyrgð“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Áróður „Crybully-ríkisstjórnarinnar“ Kristrún kýs „já“ í ágúst Samfylking í aftursætinu og Inga Sæland í skottinu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Virðist pirra Kristrúnu óskaplega“ Heiðruðu goðsögn á afmælinu Var týndur um tíma Fjárskortur hamlar kvikmyndagerð Leikur stöðvaður vegna tilkynningar um kynþáttafordóma Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka Ryksprenging í tómum tanki Viðreisn leitar sjálfboðaliða fyrir ESB-kosningu Vill gera glæpamönnum lífið leitt Mest lesið Í gær Í vikunni Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Lilja hvöss: „Hún tekur enga ábyrgð“ Fækka einingum í MR Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Þotan fór tvívegis norður í dag Einn fékk 2,5 milljónir í vasann Vill gera glæpamönnum lífið leitt Þýskt herskip á siglingu við Íslandsstrendur Lúxussnekkja á Pollinum Telja að krabbameinsgreiningum muni stórfjölga Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Leiguverð þarf að hækka töluvert Nýjast á mbl.is » „Virðist pirra Kristrúnu óskaplega“ Heiðruðu goðsögn á afmælinu Var týndur um tíma Fjárskortur hamlar kvikmyndagerð Leikur stöðvaður vegna tilkynningar um kynþáttafordóma Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Byggingin hönnuð til að gefa eftir Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð „Fólk er eðlilega í áfalli“ Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka Mest lesið Í gær Í vikunni Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Lilja hvöss: „Hún tekur enga ábyrgð“ Fækka einingum í MR Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Þotan fór tvívegis norður í dag Einn fékk 2,5 milljónir í vasann Vill gera glæpamönnum lífið leitt Þýskt herskip á siglingu við Íslandsstrendur Lúxussnekkja á Pollinum Telja að krabbameinsgreiningum muni stórfjölga Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Leiguverð þarf að hækka töluvert