Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vísar ummælum Kristrúnar til föðurhúsanna

  • What: Political discussion between Icelandic parties
  • Impact: No direct effect on IT security
Read Full Article →

Innlent | mbl | 22.3.2026 | 21:46 Vísar ummælum Kristrúnar til föðurhúsanna Guðrún Hafsteinsdóttir og Kristrún Frostadóttir. Samsett mynd/mbl.is/Anton Brink/Eyþór Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki „Við Sjálfstæðismenn höfum aldrei útilokað samstarf við neina flokka en það hefur aftur á móti Kristrún Frostadóttir gert,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Í ræðu sinni á flokksráðsfundi Samfylkingarinnar í gær skaut Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra föstum skotum á flokka stjórnarandstöðunnar og sagði t.a.m. hægriflokkana í andstöðunni hafa hlaupið frá miðjunni og út á jaðarinn. „Þetta er allt að renna saman. Jafnvel flokkar með glæsta sögu eins og Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, merkilegir flokkar á marga lund, sem gættu þess að fara aldrei of langt frá miðju stjórnmálanna en virðast núna sáttir með að enda í knippi með Miðflokki, alltaf á harðahlaupum á eftir því sem dreifist hraðast á TikTok þann daginn eða því sem fær flesta þumla á Facebook, og keppast við að úthúða okkur jafnaðarfólki og útiloka jafnvel samstarf við fólk eins og okkur! Það er dapurlegt að fylgjast með þessari þróun,“ sagði forsætisráðherrann. Frétt af mbl.is Kristrún kýs „já“ í ágúst Frétt af mbl.is Lilja hvöss: „Hún tekur enga ábyrgð“ „Við höfum bara aldrei útilokað eitt einasta stjórnmálaafl “ Í samtali við mbl.is vísar Guðrún Hafsteinsdóttir ummælum Kristrúnar til föðurhúsanna og þá sérstaklega þeim hluta þeirra er snýr að útilokun samstarfs. „Við höfum bara aldrei útilokað eitt einasta stjórnmálaafl, við Sjálfstæðismenn, en aftur á móti hefur hún útilokað að starfa með okkur og gerði það í síðustu kosningum.“ Frétt af mbl.is „Virðist pirra Kristrúnu óskaplega“ „Eini raunhæfi hægriflokkurinn“ Þá gefur Guðrún lítið fyrir ummæli Kristrúnar er snúa að því að Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn virðist nú sáttir með að enda í knippi með Miðflokki. „Við Sjálfstæðismenn erum hægri flokkur og ég vil nú meina það að við séum eini hægri flokkurinn á þingi. Ég get ekki séð að Viðreisn sé hægri flokkur þó að þau vilji nú stundum skreyta sig með því. Mér finnst þau nú komin mjög langt til vinstri. Og ég get heldur ekki séð að Miðflokkurinn sé einhver hægriflokkur því að við höfum bara ekki séð nein hægrimál eða frelsismál koma frá þeim flokki. Það er nú bara þannig,“ segir Guðrún og heldur áfram: „Þú sérð eins og í umræðunni um fjárlög fyrir jólin að við vorum eini flokkurinn sem kom með einhverjar raunhæfar og alvöru tillögur að breytingum við fjárlögin. Við komum með hagræðingartillögur upp á yfir 40 milljarða. Við komum með tillögur um skattalækkanir upp á tæpa 30 milljarða á meðan allir flokkar voru að spýta í útgjöld. Þá heyrðist ekki í Framsókn og Miðflokkurinn kom með einhverjar hugmyndir um tæpa átta milljarða þannig að ég vil nú bara segja að við séum eini raunhæfi hægriflokkurinn, enda heyri ég það í síauknum mæli að fólk nefni það við okkur Sjálfstæðismenn og við mig að það finni núna fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki að stýra landinu. Fólk finnur það bara í buddunni sinni og heimilisbókhaldinu.“ „Við Sjálfstæðismenn höfum aldrei útilokað samstarf við neina flokka en það hefur aftur á móti Kristrún Frostadóttir gert,“ ítrekar formaðurinn að lokum. Frétt af mbl.is Fjárlagafrumvarpið ýtir undir verðbólgu Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vísar ummælum Kristrúnar til föðurhúsanna Arteta: „Notum sársaukann sem eldsneyti“ From pub idea to 1,000 matches: The story of Dickenbauch Sportverein Vara við blindbyl Gætu hert árásir til að draga úr þeim Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ „Fólk er eðlilega í áfalli“ ICE-liðar á flugvelli á morgun Maðurinn sem léði Saka vængi Mest lesið Í gær Í vikunni Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Lilja hvöss: „Hún tekur enga ábyrgð“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Þotan fór tvívegis norður í dag Einn fékk 2,5 milljónir í vasann Vill gera glæpamönnum lífið leitt Þýskt herskip á siglingu við Íslandsstrendur Lúxussnekkja á Pollinum Telja að krabbameinsgreiningum muni stórfjölga Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Leiguverð þarf að hækka töluvert Nýjast á mbl.is » Vísar ummælum Kristrúnar til föðurhúsanna Arteta: „Notum sársaukann sem eldsneyti“ From pub idea to 1,000 matches: The story of Dickenbauch Sportverein Vara við blindbyl Gætu hert árásir til að draga úr þeim Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ryksprenging í tómum tanki Fjöldi flóða fyrir ofan Neskaupstað ICE-liðar á flugvelli á morgun Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka Mest lesið Í gær Í vikunni Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Lilja hvöss: „Hún tekur enga ábyrgð“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Þotan fór tvívegis norður í dag Einn fékk 2,5 milljónir í vasann Vill gera glæpamönnum lífið leitt Þýskt herskip á siglingu við Íslandsstrendur Lúxussnekkja á Pollinum Telja að krabbameinsgreiningum muni stórfjölga Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Leiguverð þarf að hækka töluvert

Share this article