Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Flest heimili komin með rafmagn að nýju

Read Full Article →

Rafmagn er komið á að nýju um stærstan hluta Kúbu eftir að raforkukerfi landsins hrundi um helgina , í annað sinn í þessari viku og það þriðja í þessum mánuði. Ríkisorkufyrirtækið greindi frá þessu í færslu á X. Raforkukerfið er gamalt og reiðir sig að miklu leyti á olíu. Hana hefur skort í auknum mæli eftir að Bandaríkjastjórn bannaði olíuflutninga frá Venesúela, helsta samherja Kúbu, fyrr á þessu ári. Yfirvöld vara við að eftirspurn eftir raforku verði meiri en framboðið áfram. Donald Trump Bandaríkjaforseti ýjaði í vikunni að yfirtöku eyríkisins og stjórnvöld búa sig undir hernaðaríhlutun að sögn aðstoðarutanríkisráðherrans Carlos Fernandez de Cossio. Hann kveðst vonast til að Bandaríkin slaki á hafnbanninu en þangað til verði allra leiða leitað til að þrauka við erfiðar aðstæður. Í viðtali á NBC kvaðst hann vonast til að ekkert yrði úr hótunum Trumps og að Kúbverjar væru alltaf reiðubúnir til viðræðna. Þó væri af og frá að hrófla við stjórnmálakerfi landsins . „Við eigum ekki í neinum útistöðum við Bandaríkin.“ sagði de Cossio og bætti við að Kúbverjar áskildu sér rétt til sjálfsvarnar. Trump hótar að setja þunga tolla á hvert það ríki sem reynir að selja Kúbverjum olíu. Engin olía hefur verið flutt inn síðan 9. janúar, sem hefur áhrif á orkugeirann eins og áður sagði og flugfélög hafa sniðgengið landið . Það veldur miklum búsifjum í ferðamennsku sem er helsta tekjulind Kúbu.

Share this article