Hafrún Gísladóttir býr í Flóahreppi ásamt eiginmanni sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi, og forláta lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. „Leggurinn var alltaf undir stofuskáp hjá mömmu og pabba á Lækjarbakka,” segir Hafrún, og tekur fram að þar hafi verið um að ræða fínasta skápinn á bænum, enda hefur hún í dag sama háttinn á. „Og ég man að við krakkarnir máttum ekki leika okkur eða vera eitthvað að fíflast nálægt honum.” Leggurinn var upprunalega á bæ ömmu hennar og afa, Loftsstöðum eystri, hinum megin við veginn, en þegar bærinn fór í eyði var leggurinn færður yfir. Þegar Hafrún og systkini hennar seldu síðan Lækjarbakka að foreldrum þeirra gengnum, var leggurinn svo settur aftur í gamla bæinn, en þaðan bjargaði Hafrún honum inn í einingahús sem hún reisti á jörðinni. Leggurinn er enda mjög mikilvægur fjölskyldunni, og hann má ekki færa of langt, eins og fram kemur í hlaðvarps-þáttaröðinni Bein , þar sem Anna Marsibil Clausen grefur upp gömul leyndarmál tengdafjölskyldu sinnar. Hrakti sjóræningja frá landi Í bókinni Huld: Safn íslenskra fræða , frá 1890, segir frá því að á tímum Tyrkjaránsins sumarið 1627 hafi stórt skip lagst að skammt undan suðurströndinni. Frá Loftsstöðum hafi sést hvernig 30 menn fóru úr skipinu út í bát og tóku að róa að landi, þar sem greip um sig mikil skelfing og fólk flúði í ofboði. Ögmundur, sem þá var orðinn blindur og örvasa, neitaði að flýja en lét leiða sig út í fjöru. Geirlaug dóttir Ögmundar reyndi að tala um fyrir honum en hafði ekki erindi sem erfiði. Á heimleiðinni, brast á með svo hvössum norðanvindi að faldurinn fauk af höfði hennar. Stormurinn hrakti bátinn til baka en sleit skipið upp og rak hvort tveggja undan. Þetta var eignað göldrum Ögmundar. Mun Ögmundur í kjölfarið hafa mælt fyrir um að eftir hans dag myndu bein hans finnast í smiðjunni á Loftsstöðum. Þau skyldi ávallt hafa á landareigninni til verndar ábúendum, og þar eru þau enn í dag. Einn lærleggur, sem áður segir, á Loftsstöðum eystri og annar á Loftsstöðum vestri, sem í dag er þjónustuhús fyrir „glamping“, fyrirtækið Camp Boutique. Beinið er ekki almáttugt Leggurinn hefur yfir sér dulúðugan blæ. Allavega tveir núlifandi fjölskyldumeðlimir hafa fengið rafstraum af því að handleika hann, og þeim sem ekki trúa á mátt hans dettur samt ekki í hug að hrófla við honum. Sjóræningjarnir frá Norður-Afríku hafa enda aldrei snúið aftur, og eins hefur enginn farist í sjóskaða úr Loftsstaða-fjölskyldunni svo vitað sé. Leggurinn hefur því sinnt hlutverki sínu, sem verndari, nokkuð vel. En ein var sú vá sem beinið gat ekki séð við. Fjallað er nánar um beinin, og ótryggan uppvöxt systkinana frá Lækjarkoti í hlaðvarpsþáttunum Bein, sem sendir eru út á Rás 1 og eru aðgengilegir á Spilara RÚV og á hlaðvarpsveitum.