Innlent | mbl | 8.4.2026 | 14:08 Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ mbl.is/Karítas Setja bókamerki Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í níu mánaða fangelsi fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Var ævilöng ökuréttarsvipting mannsins einnig áréttuð. Fram kemur í dómi héraðsdóms, sem féll 23. mars en var birtur í dag, að lögreglustjórinn á Suðurlandi hafi gefið út ákæru á hendur manninum, Hafþóri Fjalari Kristinssyni, í október í fyrra. Hann var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa fimmtudaginn 24. apríl 2025 ekið bifreið sviptur ökurétti ævilangt og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 64 ng/ml) um Gagnheiði á Selfossi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Maðurinn neitaði sök. Sagði annan hafa ekið bifreiðinni Samkvæmt frumskýrslu lögreglu voru tveir lögreglumenn við almennt eftirlit við hringtorg að Fossheiði 1 þann 24. apríl í fyrra þegar þeir tóku eftir bifreið sem var ekið vestur Fossheiði. Lögreglumennirnir tóku ákvörðun um að athuga með ástand og réttindi ökumanns bifreiðarinnar. Þá segir að ökumaðurinn sem steig út úr bifreiðinni hafi verið Hafþór. Hann tjáði lögreglu að fyrra bragði að hann hefði ekki verið ökumaður bifreiðarinnar, heldur hefði ökumaðurinn hlaupið á brott. Aðspurður sagði Hafþór við lögreglumennina að hann hefði, fyrr sama kvöld, fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“. Þá var hann færður inn í lögreglubifreið. Þegar hann var beðinn um ökuskírteini greindi Hafþór frá því að hann hefði verið sviptur ökuréttindum. Hann tilgreindi bróður kærustu sinnar sem eiganda bílsins. Með amfetamín í blóðinu Hann var síðan fenginn til að blása í rör á áfengismæli sem hafi sýnt niðurstöðuna 0,23 prómill kl. 03:50 um nóttina. Munnvatnssýni hafi sýnt jákvæða niðurstöðu fyrir AMP (amfetamíni) og COC (kókaíni). Hann var því handtekinn í kjölfarið vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá hafi Hafþóri verið kunngjört um réttarstöðu sína sem sakbornings og hann fluttur á lögreglustöðina á Selfossi þar sem hjúkrunarfræðingur dró úr honum blóð og hann látinn laus um fimm mínútum síðar. Í málinu lá fyrir matsgerð rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði. Niðurstaða hennar var sú að í blóði Hafþórs hefðu mælst 64 ng/ml af amfetamíni. Í niðurstöðukafla dómsins segir að við mat á framburði A sé til þess að líta að hann sé góður vinur Hafþórs til fjölda ára. Líkt og að framan greinir tilgreindi Hafþór hann fyrst sem ökumann bifreiðarinnar umrætt kvöld skömmu fyrir aðalmeðferð málsins. Kvaðst hafa orðið hræddur „Vitnið greindi frá því fyrir dómi að hann hafi ákveðið af sjálfsdáðum að aka bifreiðinni umrætt kvöld til að hlífa vini sínum, ákærða, frá mögulegum afskiptum lögreglu, en þegar á hólminn var komið hafi hann orðið hræddur, hlaupist á brott og skilið ákærða eftir. Aðspurður um hvert vitnið hafi hlaupið kvaðst hann hafa hlaupið mikið og lengi og að endingu falið sig til lengri tíma „hjá ánni“. Þar hafi hann varið löngum tíma í að reyna að fá einhvern til að sækja sig, en vitnið var búsett í Reykjavík á þessum tíma. Þykir framangreind frásögn vitnisins með nokkrum ólíkindum,“ segir í dómi héraðsdóms. Þá er tekið fram að það sé óhjákvæmilegt að líta til þess að verulegt ósamræmi sé milli framburðar þessa vitnis og framburðar Hafþórs um aðdraganda þess að vitnið hafi tekið að sér að aka bifreiðinni í þetta sinn. Ber augljós merki ósanninda „Framburður þessa vitnis er afar ótrúverðugur og ber augljós merki ósanninda. Verður ekki á honum byggt við úrlausn máls þessa. Að framangreindu virtu verður ekki véfengt með skynsamlegum rökum að ákærði hafi verið ökumaður bifreiðarinnar umrætt sinn,“ segir héraðsdómur sem sakfelldi Hafþór. Þá kemur fram að hann eigi nokkurn sakaferil sem nái aftur til ársins 1997, m.a. vegna umferðarlagabrota og fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum vímuefna. „Ber þess sérstaklega að geta að með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 2. desember 2012 var ákærða gert að sæta fangelsi í 2 ár og 6 mánuði, m.a. vegna aksturs undir áhrifum vímuefna og aksturs sviptur ökurétti,“ segir í dómi héraðsdóms. Þá var Hafþóri gert að greiða um 550.000 kr. í sakarkostnað. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Rússar greiða íþróttafólki sem missti af Ólympíuleikum Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ United ætlar að selja miðjumanninn í sumar Meira en helmings fækkun ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Hvar liggja mörkin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásir hafnar á brýr og járnbrautir Afstaðan í andstöðu við kjósendur Viðræður um vopnahlé haldnar í Pakistan „Orð eru til alls fyrst“ Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Afstaðan í andstöðu við kjósendur „Orð eru til alls fyrst“ Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » Rússar greiða íþróttafólki sem missti af Ólympíuleikum Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ United ætlar að selja miðjumanninn í sumar Meira en helmings fækkun ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Hvar liggja mörkin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Um 15 lönd taka þátt í opnun Hormússunds Ljósblossar á tunglinu Árásir hafnar á brýr og járnbrautir Íranar lýsa yfir sigri Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Afstaðan í andstöðu við kjósendur „Orð eru til alls fyrst“ Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón