Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tveimur þjófum vísað úr landi

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveim­ur þjófum vísað úr landi Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Tveimur körlum hefur verið vísað úr landi vegna þjófnaðar. Talið er að mennirnir hafi komið til landsins til að stunda brotastarfsemi, en þeir voru handteknir örfáum dögum eftir komuna til landsins. Þýfi fannst á dvalarstað þeirra og þeir játuðu sök, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mönnunum, erlendum ríkisborgurum á þrítugs- og fertugsaldri, var jafnframt bönnuð endurkoma til Íslnads, öðrum í sjö ár og hinum í sex ár. RÚV / Sölvi Andrason NýttMENNING OG DÆGURMÁL Náttúra Feg­ursti staður á jarð­ar­kringl­unni Í Náttúran kallar er rætt við Víði Hólm Guðbjartsson sem býr í Bakkadal í Arnarfirði á Vestfjörðum, en þar er að finna fegursta stað á jarðarkringlunni að hans mati. Fyrir 2 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Ríkisútvarpið Rás 1 og Rás 2 úti í Ísa­fjarð­ar­djúpi og á Stein­gríms­fjarð­ar­heiði Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Rás 1 og Rás 2 eru úti í Ísafjarðardjúpi, sunnan Ögurness, og á Steingrímsfjarðarheiði vegna bilunar á svæðinu. Sendastaðir RÚV sem eru niðri eru Bæir, Nauteyri og Hátungur. Ekkert útvarp næst á þessu svæði. Reynt verður að koma útsendingu í lag á miðvikudag þegar veður leyfir. Sendastaðirnir sem eru úti. RÚV Fyrir 5 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Grikkland Réttað um stærsta lest­ar­slys í sögu Grikk­lands 36 eru ákærðir fyrir að bera ábyrgð á versta lestarslysi í sögu Grikklands. 57 fórust í árekstri flutningalestar og farþegalestar fyrir þremur árum. Réttarhöld hefjast í dag og eru yfir 350 vitni væntanleg fyrir dóminn. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Hýsa lær­legg alda­gam­als galdra­manns Í um 400 ár hafa ábúendur á Loftsstöðum notið sérstakrar verndar Galdra-Ögmundar. Þau varðveita lærlegg hans í lítilli glerkistu, og svo lengi sem beinið er á jörðinni ver það þau Tyrkjaránum, sjóskaða, náttúruhamförum og hvers konar mannraunum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Flug­menn fórust í árekstri á LaG­u­ardia-flug­velli Flugstjóri og aðstoðarflugmaður létu lífið í árekstri flugvélar og slökkvliðsbíls á LaGuardia flugvellinum við New York. Öll umferð um flugvöllinn hefur verið stöðvuð um óákveðinn tíma. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Leið­inda­veð­ur víða um land og fjöldi vega á óvissu­stigi Útlit er fyrir leiðindaveður víða um land með gulum viðvörunum vegna alldjúprar lægðar. Fjöldi vega um allt land verða á óvissustigi og gætu lokast með stuttum fyrirvara. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Blak Syst­urn­ar þrjár stefna saman á bik­ar­ana þrjá Fyrir rúmri viku varð HK bikarmeistari kvenna í blaki. Í liðinu eru þrjár systur sem fögnuðu titlinum saman. Við kíktum í heimsókn til systranna og fengum að kynnast þeim betur. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Al­þjóða­veð­ur­fræði­stofn­un­in: Ójafn­vægi í inn- og út­streymi varma veldur jörð­inni vanda Alþjóðaveðurfræðistofnunin segir ójafnvægi ríkja í út- og innstreymi varma á jörðinni. Gróðurhúsalofttegundir í lofthjúpnum hleypi ekki hita út sem hafi skapað ójafnvægi í hitabúskap jarðarinnar um áratugaskeið. Árþúsundir taki að vinda ofan af því. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Flest heim­ili komin með raf­magn að nýju Kúbverjum berst rafmagn að nýju eftir allsherjarstraumrof um helgina, það þriðja í mars. Hafnbann Bandaríkjanna á olíuflutninga bítur og aðstoðarutanríkisráðherrann vonast til að því linni. Hann segir landsmenn líka viðbúna hernaðaríhlutun. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Öll flug­um­ferð stöðv­uð um LaG­u­ardia-flug­völl í New York Markús Þ. Þórhallsson Þot Air Canada á flugbraut á LaGuardia-flugvellinum eftir áreksturinn. AP/FR172324 AP / Ryan Murphy Árekstur milli þotu Air Canada sem var í lendingu og farartækis björgunarliðs á flugbraut varð til þess að öll umferð um fjölfarinn LaGuardia-flugvöllinn við New York var stöðvuð í morgun. Slökkvilið borgarinnar staðfestir áreksturinn en hefur ekki tíundað hvort nokkur slasaðist. Almenningur er varaður við frestunum á flugi, umferðartöfum og vegalokunum auk þess sem björgunarlið verði mikið á ferðinni. Flugmálastofnun Bandaríkjanna segir afar líklegt að flugbannið vari talsverða hríð. Tafir urðu á flugi um LaGuardia í gær vegna illviðris. Fréttin var uppfærð með upplýsingum um slysið á flugvellinum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkra­ínsk dróna­árás á hafn­ar­borg skammt frá landa­mær­um Finn­lands Markús Þ. Þórhallsson Eldsneytistankur stendur í ljósum logum við höfnina í rússnesku borginni Primorsk, að sögn fylkisstjórans í Leningrad. Úkraínskur hermaður með vopn sem hannað er til að tortíma drónum. EPA / ARTEM DERKACHOV Slökkvistarf stendur yfir. Borgin er skammt frá landamærum Finnlands. Fylkisstjórinn segir á sjötta tug úkraínskra dróna hafa verið grandað víðs vegar um fylkið, sem hefur hingað til ekki verið skotmark í stríðinu. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkra­ínu­for­seti vonast til að Banda­rík­in haldi áfram að miðla málum Úkraínuforseti vonast til að Bandaríkjastjórn vinni áfram að leiðum til að koma á samkomulagi við Rússa um stríðslok. Aðalsamningamaður Bandaríkjanna segir vel hafa gengið á tveggja daga samningafundi með Úkraínumönnum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Sós­í­al­ist­ar halda stærstu borgum — spenna vex fyrir for­seta­kosn­ing­arn­ar næsta ár Vinstrimenn halda völdum í tveimur stærstu borgum Frakklands eftir sveitarstjórnarkosningar í gær. Flokkum lengst til hægri og vinstri gekk ekki jafnvel og þeir höfðu vonað. Kosningarnar þykja gefa innsýn í hug kjósenda fyrir forsetakosningar að ári. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum For­seti Líban­ons segir árásir Ísra­ela á inn­viði for­leik inn­rás­ar Forseti Líbanons segir árásir Ísraela á innviði landsins forleik að innrás. Forsætisráðherra gagnrýnir Hezbollah fyrir að draga landið inn í átökin með árásum á Ísrael. Ísraelsher ætlar að auka enn í aðgerðir gegn Hezbollah innan landamæranna. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gular við­var­an­ir og fjöl­farn­ir vegir á óvissu­stigi Vegagerðin varar við þungri færð og mögulegum vegalokunum þegar hvessir með snjókomu um stóran hluta landsins. Fjölfarnir vegir verða á óvissustigi. Gular veðurviðvaranir taka gildi undir hádegi. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ol­íu­verð hækkar áfram í skugga stríð­s­átak­anna Olíuverð hækkaði við opnun Asíumarkaða sem rakið er til yfirlýsinga Ísraelsmanna um að stríðinu í Mið-Austurlöndum sé hvergi nærri lokið og hótun Bandaríkjaforseta um harðar atlögur að orkuinnviðum Írans liðki þeir ekki fyrir siglingu um Hormússund. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Slóvenía Golob for­sæt­is­ráð­herra lýsir yfir sigri þótt nánast engu muni í at­kvæða­fjölda Forsætisráðherra Slóveníu hefur lýst yfir sigri gegn leiðtoga stjórnarandstöðunnar í þingkosningum sem voru haldnar í dag. Nær öll atkvæði hafa verið talin og sjónarmunur er á atkvæðafjölda hvors flokks fyrir sig. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba „Havana þolir þetta ekki lengur“ Nær hver einasti íbúi Kúbu var án rafmagns í gær, í annað sinn í þessari viku, þegar raforkukerfi landsins hrundi. Borgin þolir þetta ástand ekki mikið lengur, segir íbúi í Havana. 22. mars 2026 kl. 22:32ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Stefn­ir í spenn­andi kosn­ing­ar í Dan­mörku Mikil spenna ríkir í aðdraganda þingkosninga í Danmörku á þriðjudag. Lokakappræður fóru fram í kvöld. Mette Frederiksen ávarpaði hátíð Jafnaðarmanna. 22. mars 2026 kl. 22:11INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Mikil fjölg­un á slysum í sendi­bíl­um í út­leigu Fjöldi sendibíla í útleigu hefur margfaldast á undanförnum fimmtán árum, en flestum þeirra hefur verið breytt í nokkurs konar húsbíla. Slys á fólki í sendibílum voru fjórum sinnum fleiri á síðustu tíu árum en á áratugnum þar á undan. 22. mars 2026 kl. 21:32INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Þurftu að ryðja tvisv­ar og áfram verður haldið Snjóruðningsmenn í Reykjavík fóru snemma á fætur og byrjuðu að ryðja götur og gangstíga klukkan fjögur í nótt. Endurtaka þurfti verkið þegar aftur fór að snjóa og áfram verður haldið í nótt. 22. mars 2026 kl. 20:42ÍÞRÓTTIR Frjálsar Yngsti heims­meist­ari sög­unn­ar Bandaríkjamaðurinn Cooper Lutkenhaus varð í kvöld yngsti verðlaunahafi sögunnar á heimsmeistaramóti í frjálsíþróttum sögunnar þegar hann vann 800 metra hlaup karla. HM í Toruń í Póllandi lauk í dag. 22. mars 2026 kl. 20:31INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Kven­fé­lags­kon­ur gefa og gefa til líkn­ar­mála Formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands var haldinn í Borgarnesi í lok febrúar. Forseti sambandsins segir kvenfélagskonur duglegar að styrkja hin ýmsu málefni. Rúmlega 150 kvenfélög eru á landinu og kvenfélagskonurnar í þeim eru um fimm þúsund. 22. mars 2026 kl. 19:49INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hvað er að frétta af Flokki fólks­ins í borg­inni? Níu oddvitar hafa verið kynntir í borginni. Enn bólar ekkert á framboðslista Flokks fólksins. Ljóst að núverandi oddviti vill ekki leiða listann. Aðallega tveir nefndir til sögunnar. 22. mars 2026 kl. 19:03INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Að­stæð­ur geta verið krefj­andi fyrir lækna á lands­byggð­inni Læknar sem starfa í dreifbýli geta lent í mjög krefjandi aðstæðum þegar ekki er hægt að flytja sjúklinga á stærri sjúkrahús vegna veðurs. Um tuttugu læknar æfðu bráðaviðbrögð á Siglufirði um helgina. 22. mars 2026 kl. 18:45ÍÞRÓTTIR Borðtennis Sól Ís­lands­meist­ari eftir ótrú­lega end­ur­komu Sól Kristínardóttir Mixa varð Íslandsmeistari kvenna í annað skiptið í dag eftir frábæran úrslitaleik. Hún lenti 0-3 undir en vann þá fjórar lotur í röð og sigraði 4-3. Ingi Darvis Rodriguez varð Íslandsmeistari karla í fjórða skipti eftir 4-0 sigur. 22. mars 2026 kl. 17:43ÍÞRÓTTIR Fimleikar Gerpla end­ur­heimti bik­ar­inn með stæl Gerpla varð í dag bikarmeistari kvenna í hópfimleikum. Liðið vann bikarinn síðast 2023 en Stjarnan, sem fékk silfur í dag, vann síðustu tvö ár. Stjarnan var eina liðið í karlakeppni og því bi

Share this article