- What: A bill has been introduced in Iceland that would allow for the earlier deportation of foreign prisoners.
- Impact: The bill aims to address overcrowding in Icelandic prisons by shortening the sentences of foreign prisoners who are already slated for deportation upon release.
Innlent | mbl | 13.2.2026 | 16:16 Heimilt verði að vísa föngum fyrr úr landi Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Karítas Frumvarp sem heimilar yfirvöldum að vísa erlendum föngum úr landi þegar aðeins einn þriðji hluti refsitímans er liðinn, í stað helmings, hefur verið birt í samráðsgátt. Þess ber að geta að heimildin nær aðeins til þeirra fanga sem endanlega hefur verið ákveðið að vísa úr landi að afplánun lokinni. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að frumvarpið feli í sér endurskoðun á ákvæðum laga sem varða reynslulausn og fullnustu refsinga utan fangelsa, í þeim tilvikum þar sem fyrir liggur að erlendum föngum með lítil eða engin tengsl við Ísland verði brottvísað í kjölfar afplánunar. Heimild þessi yrði tímabundin og myndi aðeins gilda til 1. júlí á næsta ári. Í tilkynningunni segir að aðgerðinni sé ætlað að bregðast hratt við alvarlegri stöðu í fangelsum landsins og breyttri samsetningu fanga með það markmið að stytta boðunarlista og draga úr líkum þess að dæmdar refsingar fyrnist á meðan unnið er að frekari uppbyggingu og fjölgun afplánunarrýma. Graf/Stjórnarráðið Geta ekki afplánað refsingu á áfangaheimili „Ákvörðun um brottvísun erlends ríkisborgara að afplánun lokinni fylgir ávallt bann við endurkomu til Íslands. Hafi viðkomandi ekki rétt til búsetu í öðru Schengen-ríki tekur bannið einnig til Schengen-svæðisins í heild. Slík ráðstöfun er íþyngjandi, hefur víðtækar afleiðingar fyrir viðkomandi og felur í sér verulegan fælingarmátt,“ segir í tilkynningunni. „Á sama tíma er lagt til að þeir sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi geti ekki afplánað refsingu á áfangaheimili eða undir rafrænu eftirliti líkt og aðrir fangar. Slík úrræði eiga aðeins við þegar markmiðið er aðlögun að íslensku samfélagi, sem á ekki við um þá sem ljóst er að hafi engin eða lítil tengsl við landið og muni yfirgefa landið að afplánun lokinni.“ Brot hafa langvarandi afleiðingar Haft er eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að skilaboðin séu skýr. Alvarleg brot framin á Íslandi hafi raunverulegar og langvarandi afleiðingar. „Þegar ákvörðun um brottvísun liggur fyrir og afplánun lýkur verður brotamönnum vísað strax úr landi og þeir fá endurkomubann til Íslands og eftir atvikum alls Schengen-svæðisins. Þannig tryggjum við að fangelsisrými nýtist þar sem þess er raunverulega þörf og að brottvísanir séu ekki aðeins orð á blaði heldur raunveruleg aðgerð.“ Franskur ferðamaður fannst látinn Heimilt verði að vísa föngum fyrr úr landi Þrír United-menn aftur inn í myndinni hjá landsliðinu Mari og Njörður gefa upp kynið Tvær vinsælar vörur snúa aftur: Pipar Tromp í nýjum búningi og Eitt Sett Kúlur Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Hvernig mun framtíð Evrópu og Bandaríkjanna líta út? Þar sem enginn vill halda sín jól Dregur úr hömlum á losun gróðurhúsalofttegunda Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Eldur í bústað við Elliðavatn Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Harður árekstur á Suðurlandsvegi Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Þar sem enginn vill halda sín jól Brunagaddur á nokkrum stöðum Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Franskur ferðamaður fannst látinn Heimilt verði að vísa föngum fyrr úr landi Þrír United-menn aftur inn í myndinni hjá landsliðinu Mari og Njörður gefa upp kynið Tvær vinsælar vörur snúa aftur: Pipar Tromp í nýjum búningi og Eitt Sett Kúlur Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Bindur vonir við að hægt verði að ná sáttum Pílustaður ekki íþróttamannvirki Framsókn kýs nýjan formann Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Eldur í bústað við Elliðavatn Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Harður árekstur á Suðurlandsvegi Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Þar sem enginn vill halda sín jól Brunagaddur á nokkrum stöðum Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum