- What: A proposed law in Iceland would allow foreign prisoners with little or no ties to the country to be released after serving one-third of their sentence instead of one-half.
- Impact: This change aims to address overcrowding in the prison system and expedite the deportation of foreign prisoners upon release.
Erlendir fangar með lítil eða engin tengsl við Ísland fá reynslulausn eftir að hafa afplánað þriðjung refsingar í stað helmings, nái frumvarp dómsmálaráðherra fram að ganga. Drög að frumvarpinu voru birt í samráðsgátt í dag . Þar er lagt til að tímabundin heimild verði veitt til styttingar á reynslulausn þegar fyrir liggur að erlendum föngum verði brottvísað í kjölfar afplánunar. Við reynslulausn yrði viðkomandi vísað úr landi þegar í stað. Einnig er lagt til að þeir sem hefur verið ákveðið að vísa úr landi geti ekki afplánað refsingu á áfangaheimili eða undir rafrænu eftirliti. Slík úrræði eigi aðeins við þegar viðkomandi ætli að aðlagast íslensku samfélagi. Í drögunum segir að álag í fangelsiskerfinu valdi því að sífellt fleiri dómar fyrnist. 75 óskilorðsbundnir dómar fyrndust í fyrra og 98 árið áður, samanborið við 22 árið 2020 og 16 árið 2019. Rúmlega helmingur þeirra sem sættu gæsluvarðhaldi í lok janúar voru erlendir ríkisborgarar. Ekki liggur fyrir hve stór hluti þeirra á yfir höfði sér brottvísun.