Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Yfirfullar deildir og fangar vistaðir í ófullnægjandi klefum

Read Full Article →

Stjórn Fangavarðafélags Íslands segir að ástand fangelsa sé þannig að geta fangavarða til að bregðast við illdeilum og erjum meðal fanga sé verulega skert og ekkert svigrúm til að flytja fanga milli staða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu félagsins sem lýsir þungum áhyggjum af stöðu fangelsa landsins. Stjórnin segir að síðustu misseri hafi öll fangelsi landsins, bæði öryggisfangelsi og opin fangelsi, verið nær stöðugt með 100 prósent nýtingu. Þess vegna hafi langir biðlistar myndast og ekki verið hægt að taka við síbrotamönnum og öðrum sem hafi verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Því hafi ýmist þurft að sleppa fólki úr haldi eða láta það dvelja langtímum saman við ófullnægjandi aðstæður í fangaklefum á lögreglustöðvum. Stjórnin segir að almennir fangar hafi verið látnir dvelja í einangrunarklefum á Hólmsheiði yfir nóttina og að yfir daginn hafi verið allt upp í tólf eða fjórtán fangar á deildum sem voru hannaðar fyrir átta. Auk þess séu dæmi um að fangar á Hólmsheiði og Litla-Hrauni hafi verið vistaðir í klefum með ónothæfum eða biluðum kallkerfum. „Stjórn FVFÍ fullyrðir að fangelsiskerfið á Íslandi sé algjörlega komið að þolmörkum þegar að kemur að getu starfsfólks til að viðhalda öryggi og eðlilegri þjónustu innan fangelsanna. Streita og álag er mikil hjá bæði fangavörðum og föngum og geta fangavarða til að bregðast við illdeilum og erjum meðal fangahópsins er verulega skert þegar ekkert svigrúm er til að flytja fanga milli staða.“

Share this article