Innlent | mbl | 13.4.2026 | 8:28 Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Litla-Hraun. mbl.is/Ómar Óskarsson Setja bókamerki Fangelsi landsins hafa mánuðum saman verið yfirfull með þeim afleiðingum að erfiðara er að tryggja öryggi fanga og starfsfólks og halda uppi eðlilegri þjónustu. Stjórnvöld fljóta sofandi að feigðarósi ef ekki verður brugðist við ástandinu með tafarlausum aðgerðum til að fjölga fangaplássum og bæta aðbúnað og mönnun í fangelsunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Fangavarðafélags Íslands, sem lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu mála. Frétt af mbl.is Öll fangelsi hafa verið yfirfull „Löng biðröð hefur myndast um að nýta hvert laust klefapláss og ekki hefur verið unnt að verða við beiðnum lögreglu um að taka við síbrotamönnum og öðrum sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald, sem verður til þess að einstaklingum sé sleppt úr haldi lögreglu eða að þeir þurfi að dvelja langtímum í fangaklefum á lögreglustöðvum við ófullnægjandi aðstæður,“ segir í yfirlýsingunni. Fangelsið á Hólmsheiði. Þar kemur einnig fram að dæmi séu um að vista þurfi almenna fanga í fangelsinu á Hólmsheiði dögum eða vikum saman í einangrunarklefum yfir nætur þar sem ekki er pláss fyrir þá á almennum deildum. „Stjórn FVFÍ fullyrðir að fangelsiskerfið á Íslandi sé algjörlega komið að þolmörkum þegar að kemur að getu starfsfólks til að viðhalda öryggi og eðlilegri þjónustu innan fangelsanna. Streita og álag er mikil hjá bæði fangavörðum og föngum og geta fangavarða til að bregðast við illdeilum og erjum meðal fangahópsins er verulega skert þegar ekkert svigrúm er til að flytja fanga milli staða,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni. Tilkynningin í heild sinni: „Stjórn Fangavarðafélag Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum sínum af stöðu fangelsa landsins sem hafa mánuðum saman verið yfirfull með þeim afleiðingum að erfiðara er að tryggja öryggi fanga og starfsfólks og halda uppi eðlilegri þjónustu. Síðustu misseri hafa öll fangelsi landsins, lokuð öryggisfangelsi jafnt og opin fangelsi, verið gert að nýta alla lausa klefa og nýting plássa hefur verið nær stöðugt nálægt 100%. Löng biðröð hefur myndast um að nýta hvert laust klefapláss og ekki hefur verið unnt að verða við beiðnum lögreglu um að taka við síbrotamönnum og öðrum sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald, sem verður til þess að einstaklingum sé sleppt úr haldi lögreglu eða að þeir þurfi að dvelja langtímum í fangaklefum á lögreglustöðvum við ófullnægjandi aðstæður. Í fangelsinu á Hólmsheiði eru dæmi um að vista þurfi almenna fanga dögum eða vikum saman í einangrunarklefum yfir nætur þar sem ekki er pláss fyrir þá á almennum deildum. Yfir daginn eru slíkir fangar vistaðir á almennum deildum sem eru þegar fullskipaðar svo dæmi er um að 12 eða 14 manns séu samankomnir á deildum hugsaðar fyrir 8 fanga. Dæmi er um að fangar í báðum lokuðu fangelsunum á Hólmsheiði og Litla Hrauni séu vistaðir í klefum þar sem kallkerfi eru ónothæf eða biluð vegna þessa ástands. Stjórn FVFÍ fullyrðir að fangelsiskerfið á Íslandi sé algjörlega komið að þolmörkum þegar að kemur að getu starfsfólks til að viðhalda öryggi og eðlilegri þjónustu innan fangelsanna. Streita og álag er mikil hjá bæði fangavörðum og föngum og geta fangavarða til að bregðast við illdeilum og erjum meðal fangahópsins er verulega skert þegar ekkert svigrúm er til að flytja fanga milli staða. Telur stjórn FVFÍ að stjórnvöld fljóti sofandi að feigðarósi verði ekki brugðist við þessu ástandi með tafarlausum aðgerðum til að fjölga fangaplássum og bæta aðbúnað og mönnun í fangelsunum.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kunni hvorki að elda né þvo föt Sóttu slasaðan skipverja út af Látrabjargi Brotnuðu algjörlega hjá United Lofað upp í ermina á Alþingi Bretland styður ekki hafnbannið Umræðan Það munar um 800 milljónir Er tekjufall í landbúnaði birtingarmynd árangurs? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Kaus í fyrsta skipti 63 ára Kjörsókn aldrei meiri í Ungverjalandi Mest lesið Í gær Í vikunni Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Fólkið mun á endanum gefast upp Kaus í fyrsta skipti 63 ára Myndir: Forsetahjónin sáu lokasýningu Birtíngs Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Slydduél um vestanvert landið Atvinnustefnan þarf ekki að kosta mikið Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Væri ekki leyfilegt innan ESB Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Þekkt leikkona styður Grindavík Nýjast á mbl.is » Kunni hvorki að elda né þvo föt Sóttu slasaðan skipverja út af Látrabjargi Brotnuðu algjörlega hjá United Lofað upp í ermina á Alþingi Bretland styður ekki hafnbannið Umræðan Það munar um 800 milljónir Er tekjufall í landbúnaði birtingarmynd árangurs? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Atvinnustefnan þarf ekki að kosta mikið Fólkið mun á endanum gefast upp Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lofað upp í ermina á Alþingi Mest lesið Í gær Í vikunni Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Fólkið mun á endanum gefast upp Kaus í fyrsta skipti 63 ára Myndir: Forsetahjónin sáu lokasýningu Birtíngs Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Slydduél um vestanvert landið Atvinnustefnan þarf ekki að kosta mikið Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Væri ekki leyfilegt innan ESB Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Þekkt leikkona styður Grindavík