- What: Icelandic minister discusses opening an immigration detention center
- Impact: May affect individuals in immigration detention
Brottfararstöð fyrir vistun útlendinga mun létta verulega á fangelsunum, að mati Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Hún boðar frumvarp og aðgerðir í fangelsismálum. „Við erum sannarlega í aðgerðum og eitt af stóru svörunum þar er að geta opnað brottfararstöð. Því við erum að vista mjög marga í fangelsum landsins sem sitja í gæsluvarðhaldi, án þess að hafa nokkuð til saka unnið,“ segir Þorbjörg Sigríður. Stjórnvöld ræða við Spán og Pólland um að taka við föngum þaðan, sem afplána hér á landi. Við ætlum að koma þessum mönnum úr landi, segir dómsmálaráðherra. Óvíst hvenær brottfararstöð verður opnuð Og þar á ráðherra við útlendinga, sem eru í gæsluvarðhaldi meðan þeir bíða flutnings úr landi. Þeir verða þá vistaðir í fyrirhugaðri brottfararstöð – sem óvíst er hvenær verður opnuð, ráðherra lagði fram frumvarp um hana í nóvember og það bíður nú annarrar umræðu. Á áttunda hundrað voru á boðunarlista Fangelsismálastofnunar um áramótin og biðu þar fullnustu refsingar – en reyndar er um fjórðungur þeirra farinn úr landi. Síðustu tvö ár hafa hátt í 200 fangelsisrefsingar fyrnst vegna þess að fangar komast ekki í afplánun. Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að bregðast hratt við og kynnir á næstu dögum frumvarp um brottvísun erlendra fanga með lítil tengsl við landið. Þá er til skoðunar að erlendir fangar verði fluttir í fangelsi í sínum heimalöndum „Við erum í samskiptum núna við lönd eins og Spán og Pólland um að fangar afpláni í sínu heimaríki.“ Engin tengsl við landið og eiga ekki að vera hér Dómsmálaráðherra segir að samsetning hópsins hafi breyst mikið á undanförnum árum. „Og mikið af föngum með engin tengsl við landið og eiga einfaldlega ekki að vera hérna. Þannig að við ætlum að koma þessum mönnum úr landi.“