- What: Ukrainian refugees in Iceland are expressing concerns about proposed changes to immigration laws that could affect their residency status.
- Impact: The changes may prevent Ukrainian refugees who have received asylum in Iceland from automatically obtaining permanent residency.
Tugir Úkraínumanna skiluðu inn umsögn við áform dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga sem miðast að því að koma í veg fyrir að Úkraínumenn, sem hafa fengið hæli hér á landi á grundvelli laga um fjöldaflótta, fái sjálfkrafa ótímabundið dvalarleyfi. Umsagnarfresti lauk fyrir helgi. Alls bárust 276 umsagnir og meirihluti þeirra er frá Úkraínumönnum sem komu hingað eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022. Sumir þeirra hafa aðeins verið hér í einhverja mánuði meðan aðrir í nokkur ár. Ég hef hvergi að snúa aftur, ég er frá Mariupol. Borgin mín er hernumin. Þakka ykkur, Ísland, fyrir að veita mér hæli, vinnu og heiðskírt loft án stríðs. – Oleksandr Zubkov Flestir lýsa miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum. Sumir lýsa því hve ánægðir þeir eru á Íslandi og hvernig þeir hafa aðlagast íslenskri menningu. Nokkur hluti fólksins lýsir því hvernig innrásin hafði áhrif á líf þess og ástvina þess. Núverandi fyrirkomulag felur í sér að umsóknir Úkraínumanna þurfa ekki að fara í gegnum hefðbundið ferli heldur. Þær afgreiddar á grundvelli laga um fjöldaflótta sem er mun einfaldara. Verndin hefur verið tímabundin og án lagabreytinga virkjast réttur til ótímabundins dvalarleyfis á næsta ári. Úkraína mun aldrei aftur verða heimili okkar. Þegar maður hefur einu sinni þurft að flýja þaðan, þá er ómögulegt að finna aftur öryggi þar. – Hanna Kovalova Áform dómsmálaráðherra miðast að því að koma í veg fyrir að Úkraínumenn, sem hafa fengið hæli hér á landi á grundvelli laga um fjöldaflótta, fái sjálfkrafa ótímabundið dvalarleyfi. Þeir sem kjósa að búa áfram á Íslandi þurfa þá að sækja um dvalarleyfi í gegnum hefðbundið ferli. Megintilgangur frumvarpsins er að samræma lagaákvæði er þetta varðar við löggjöf og framkvæmd Evrópusambandsins, auk þess sem miðað er við sambærilega framkvæmd í Noregi og Danmörku. Dóttir mín kom hingað þegar hún var 4 ára. Nú er hún næstum 8 ára. [...] Eftir þennan hrylling gaf Ísland henni tækifæri til að vera barn aftur. Að rífa hana upp núna, frá eina friðinum sem hún hefur þekkt, væri áfall sem ég get ekki einu sinni lýst. – Nataliia Trotsenko Í greinargerð dómsmálaráðuneytisins segir að verði ekki ráðist í lagabreytingar öðlist verulegur fjöldi Úkraínumanna rétt til dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða í mars 2027 eða þegar stríðinu í Úkraínu lýkur. Eftir eitt ár með slíkt leyfi fengi fólkið rétt til ótímabundins dvalarleyfis. „Slík þróun myndi leiða til þess að íslensk framkvæmd yrði frábrugðin samræmdri áætlun sem unnið er að á vettvangi Evrópusambandsins.“ Ég er mjög þakklátur fallega landinu ykkar, Íslandi, fyrir hlýju móttökuna sem móðir mín og ég fengum. Móðir mín lést og var grafin á Íslandi, og árið 2024, eftir að eldflaug skall á húsið okkar í Úkraínu, var heimilið okkar algjörlega eyðilagt. – Oleksii Pastushenko Um sex milljónir Úkraínumanna hafa flúið heimaland sitt frá upphafi stríðsins. Á þeim tíma hefur fjöldi Úkraínumanna með búsetu á Íslandi tífaldast. 6.283 Úkraínumenn höfðu sótt um vernd hér á landi í árslok 2025, þar af rúmlega 1.000 í fyrra.