Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hluta­bréfa­vísitölur taka kipp eftir yfir­lýsingu Trump

Read Full Article →

Fjármálamarkaðir hafa tekið vel í yfirlýsingu Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að bandaríski herinn muni fresta frekari árásum á írönsk orkumannvirki í fimm daga eftir „árangursríkar“ viðræður við stjórnvöld í Íran. Sjá einnig Olíuverð lækkar um 10% Evrópska hlutabréfavísitalan hafði lækkaði um 2,3% þegar mest lét í morgun. Vísitalan tók kipp eftir að Trump birti téða yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum Truth Social í hádeginu og hefur nú hækkað um 1,1% í dag. Íslenska úrvalsvísitalan OMXI15 hefur hækkað um 2,7% frá því í hádeginu og stendur í 2.580 stigum þegar fréttin er skrifuð. Hún hafði fram að hádegi í dag lækkað um 2,8% og stóð í 2.510 stigum kl. 12. Ellefu félög aðalmarkaðarins hafa hækkað í viðskiptum dagsins, en þar af hefur gengi Reita, Eimskips, Eikar og Skeljar hækkað um 1% eða meira.

Share this article