Framvirkir samningar á ólíu lækkuðu snarpt eftir að Donald Trump forseti sagði að hann hygðist fresta árásum á írönsk raforkuver í fimm daga í kjölfar þess sem hann lýsti sem árangursríkum viðræðum við Íran. Brent-hráolía hefur lækkað um 9,64% í morgun og stendur í 101 dal. WTI-hráolía, bandaríska viðmiðið, hefur lækkað um 9,16% lægri og um 89,23 dalir á tunnu. Trump tjáði sig fyrir stundu um í færslu á samfélagsmiðli sínum: „ÉG HEF FALIÐ STRÍÐSMÁLARÁÐUNEYTINU AÐ FRESTA ÖLLUM HERNAÐARÁRÁSUM Á ÍRÖNSK RAFORKUVER OG ORKUINNVIÐI Í FIMM DAGA" Olíuverð hafði hækkað fyrr í morgun, þar sem fjárfestar voru taugaóstyrkir eftir að Trump forseti sagði fyrir tveimur dögum að Bandaríkin myndu gera árás á íranska innviði og orkufyrirtæki seint á mánudag, nema Íran opnaði Hormússundið.