Verð á Brent-hráolíu hækkaði um 4,1% á Asíumörkuðum og fór tunnuverð í 105,5 dali eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafnaði tillögu Írana um að binda enda á stríðsátök. Á vef BBC segir að hráolía í Bandaríkjunum hafi sömuleiðis hækkað um 4,4%. Samkvæmt írönsku fréttastofunni Tasnim sendu írönsk stjórnvöld tillöguna til Bandaríkjanna í gegnum pakistönsk stjórnvöld, sem hafa hingað til gegnt málamiðlunarhlutverki í átökunum. Íranar kölluðu þar eftir tafarlausu vopnahléi og tryggingum fyrir því að Bandaríkin og Ísrael myndu ekki hefja frekari árásir á landið. Sjá einnig Shell hagnast um 950 milljarða króna Trump brást harkalega við tillögunni og skrifaði færslu á samfélagsmiðla þar sem hann sagði tillöguna vera algjörlega óásættanlega. Hækkun á olíuverði hefur skilað stærstu orkufyrirtækjum heims miklum hagnaði undanfarna mánuði. Sádíarabíska fyrirtækið Aramco greindi í gær frá 25% hagnaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Olíurisarnir BP og Shell hafa sömuleiðis greint frá miklum hagnaði á fyrstu mánuðum ársins en Shell hagnaðist um 6,92 milljarða dala á fyrsta ársfjórðungi. Hagnaður BP tvöfaldaðist milli ára og greindi norska fyrirtækið Equinor einnig frá 9,77 milljarða dala hagnaði.