Olíuverð hefur lækkað í dageftir aukna óvissu á alþjóðamörkuðum og væntingar um minni eftirspurn. Sjá einnig Hafa sent Írönum 15 atriða friðartillögu Brent-olía hefur lækkað um 5% og er komin niður í um 95 dali á tunnu. Á sama tíma hefur bandaríska WTI hráolían einnig lækkað um 5% og stendur í tæpum 88 dölum. Þrátt fyrir spennu í Miðausturlöndum virðast fjárfestar leggja meiri áherslu á mögulega samdrátt í hagkerfum og aukið framboð. Þetta hefur þrýst verðinu niður til skemmri tíma, þó óvissa haldi áfram að einkenna markaðinn. Milligöngumenn frá Tyrklandi, Egyptalandi og Pakistan reyna að koma á fundi milli embættismanna Bandaríkjanna og Írans, en stjórnvöld í Teheran hafa sýnt þvermóðsku gagnvart möguleikanum á diplómatískum viðræðum og virðist bera mikið í milli. Bandaríkin sendu Íran 15 liða áætlun til að binda enda á stríðið, sem byggir að stórum hluta á kröfum sem settar voru fram á valdatíma Donalds Trump. Talsmaður íranska hersins gaf í skyn að Bandaríkin væru í raun að semja við sjálf sig til að komast út úr „stefnumarkandi ósigri“. Arabísk ríki við Persaflóa hafa sífellt meiri áhyggjur af því að Donald Trump vilji ná samkomulagi. Leiðtogar Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmanna hafa beitt Trump miklum þrýstingi að halda stríðinu áfram þar til Íran hefur veikst nægilega til að ógna þeim ekki lengur. Að auki grunar yfirvöld í Bandaríkjunum að Íran hafi ráðið einstaklinga til hryðjuverkaárása í Evrópu og komið á fót fölsuðum hryðjuverkasamtökum til að lýsa yfir ábyrgð á árásum á gyðingaskóla, samkunduhús og fyrirtæki tengd Ísrael. Sjá einnig Sagður hvetja Trump til að halda stríðinu áfram Ísrael segist hafa lokið bylgjum loftárása sem beindust að innviðum tengdum stjórnvöldunum í Teheran. Írönsk eldflaug lenti nærri stærstu raforkuveri Ísraels. Öldungadeild Bandaríkjaþings hafnaði í gærkvöldi í þriðja sinn í þessum mánuði tilraun til að setja skorður við hernaðaraðgerðum Donalds Trump í Íran. Fór atkvæðagreiðslan þannig að 53 voru á móti og 47 voru fylgjandi.