Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olían hrynur í verði eftir ummæli Trump

Read Full Article →

Olíuverð hefur fallið eins og steinn nú undir kvöld. Bandaríska WTI olían fór hæst í 119 dali í morgun og er komin niður í 86 dali og er tæpum fjórum prósentustigum lægri en við opnun markaða í gærkvöldi. Brent Norðursjávarolía fór í svipaðar hæðir, hefur ekki verið hærri síðan mitt árið 2022, og er nú komið niður í 88 dali. Verðið var farið að lækka um miðjan daginn. Ein helsta ástæða lækkunarinnar var sú að G-7 ríkin, sjö stærstu þróuðu hagkerfi heims, lýstu sig reiðubúin að losa um olíu úr varaforða sínum til að koma stöðugleika á alþjóðlegan orkumarkað ef þörf krefði, að sögn Roland Lescure fjármálaráðherra Frakklands. Á sama tíma draga olíuframleiðendur við Persaflóa úr framleiðslu og siglingar á svæðinu hafa nánast lamast. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við CBS nú fyrir stundu að stríðið við Íran, sem hófst fyrir rúmri viku, væri „mjög langt komið“, og gengi hraðar fyrir sig en upphafleg áætlun hans, sem hafði gert ráð fyrir að átökin myndu standa í fjórar til fimm vikur. Skjáskot af vef Wall Street Journal.

Share this article