Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olían heldur áfram að lækka

Read Full Article →

Brent-hráolía hefur lækkað umtalsvert í morgun í kjölfar þess að verðið dúndraðist upp í gærmorgun og féll eins og steinn þegar leið á daginn. Olían lækkaði fyrst um miðjan daginn eftir að G-7 ríkin sögðust myndu nota olíubirgðir sínar héldist verðið áfram hátt. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði um kvöldið að stutt væri í að stríðinu við Írani myndi ljúka. Í kjölfarið hrundi verðið. Sjá einnig Olían hrynur í verði eftir ummæli Trump Fatið á Brent Norðursjávarolíu stendur nú í 86 dölum og hefur lækkað um 7,98% í dag en hún lokaði í 93,72 dölum í gær. Enn er mikil óvissa með olíuverðið og fréttir af átökum við Hormússund skipta þar mestu. Takist Bandaríkjaher að ná stjórn á svæði er líklegt að olían muni lækka verulega.

Share this article