Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Stórhríð sunnan- og austanlands í kvöld

  • What: Strong storm with snow and wind across Iceland
  • Impact: Road closures and travel disruptions
Read Full Article →

Gular viðvaranir eru í gildi um nær allt land í dag vegna norðaustan- og austanhvassviðris eða storms með snjókomu og skafrenningi. Fjöldi vega er á óvissustigi og gæti þeim verið lokað með stuttum fyrirvara, þar á meðal helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt veðurspá má búast við vaxandi vindi, víða 13 til 20 metrum á sekúndu og allt að 28 metrum á sekúndu sunnan- og austantil. Talsverðri snjókomu er spáð eftir því sem líður á daginn. Lausamjöll um allt land „Það er verst hvað það er mikil lausamjöll um allt land. Hún fer af stað og myndar kóf í svona tólf, þrettán, fjórtán metrum á sekúndu og það er sá vindur sem er spáð í dag,“ segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni. Að sögn Einars er víða þungfært og ekki langt í lokanir á sumum svæðum. Til að mynda sé vindhraði kominn í tuttugu metra á sekúndu undir Eyjafjöllum og því geti farið að styttast í lokunaraðgerðir þar. „Hér suðvestanlands versnar veðrið núna eftir hádegi svona til tvö eða þrjú og gerir bæði ofankomu og nægan vind til þess að fá skafrenning og blindu. Það á við um Reykjanesbrautina og vegina austur fyrir fjall og norður frá Reykjavík upp í Borgarnes og í Borgarfirði,“ segir Einar og bætir við að höfuðborgarsvæðið sjálft sé þó í nokkru skjóli. Skert skyggni ökumanna Þegar líða tekur á daginn færist veðrið austur yfir landið þar sem búast má við slæmum veðurskilyrðum. Stórhríðarveður verður austanlands og suðaustanlands í kvöld með mikilli ofankomu og hríðarveðri. Einar segir hríðarveðrið hafa áhrif á skyggni og eru vegfarendur hvattir til þess að fylgjast vel með færð og veðri og sýna aðgát á ferðum sínum. Skafrenningur og blinda geti orðið mjög slæm fyrir ökumenn. „Ökumenn hætta bara að sjá í fimmtán til sextán metrum á sekúndu þegar það er svona mikil lausamjöll sem fer upp og veldur blindu,“ segir Einar. Búast má við því að draga taki úr veðrinu á Suðvesturlandi í kvöld en að það haldist lengur annars staðar. Það gæti staðið á Vestfjörðum og austanlands fram á nótt eða þangað til í fyrramálið.

Share this article