- What: A fire truck was called out due to a traffic accident
- Impact: The accident occurred near Varmahlíð in Skagafjörður
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni Lögreglunnar á Norðurlandi vestra vegna umferðarslyss við Varmahlíð. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrluna hafa verið kallaða út í mesta forgangi og hafa tekið á loft um klukkan hálf sex í dag. Pétur Björnsson yfirlögregluþjónn segir slysið alvarlegt en kvaðst ekki hafa upplýsingar um hversu margir væru slasaðir. Lögreglunni hafi borist útkallið rétt fyrir klukkan fimm í dag og viðbragðsaðilar séu á vettvangi. Vegurinn sé ekki lokaður. Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast.