Samfylkingin og félagar í Ölfusi hyggjast ráða Bryndísi Gunnlaugsdóttur sem bæjarstjóra nái framboðið þeim árangri sem þarf.Aðsend / Samfylkingin og félagar Ölfusi Samið hefur verið við Bryndísi Gunnlaugsdóttir um að verða bæjarstjóraefni Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu undirritaðri af Gunnsteini R. Ómarssyni oddvita og þeim sem skipa 2. til 4. sæti á lista framboðsins. Bryndís er 45 ára lögfræðingur og sat í bæjarstjórn Grindavíkur í 5 ár, þar af 4 sem forseti bæjarstjórnar. Hún hefur starfað hjá KPMG og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, hefur kennt sveitarstjórnarrétt og stjórnsýslu við tvo háskóla og er mikil körfuboltakona. Bryndís býr ásamt eiginmanni og dóttur í Hveragerði en er sögð munu flytja til Þorlákshafnar verði hún ráðin bæjarstjóri Ölfuss.