Hvöss norðanátt leikur um landsmenn víðast hvar í dag. Snjór fellur á Austlendinga framan af morgni en við Faxaflóa styttir upp eftir hádegi. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi á Austfjörðum og Seyðisfirði. Víða eru vegir lokaðir eftir veðurham gærdagsins. Veðurstofan biður fólk um að athuga ástand þeirra áður en það leggur af stað í ferðalög. Þegar þetta er skrifað rétt fyrir klukkan sjö eru margir vegir lokaðir á austanverðu landinu og nokkrir norðan til. Gular viðvaranir eru í gildi á norðan- og austanverðu landinu en byrja að detta út klukkan sjö og verða allar að baki í hádeginu. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðan og norðaustan 8-15 m/s í dag og él, en 13-20 og snjókoma austanlands fram eftir morgni. Styttir upp við Faxaflóa eftir hádegi. Frost 0 til 7 stig. Fremur hæg breytileg átt á morgun, en norðvestan 10-18 austantil. Dálítil él norðaustanlands, annars þurrt að mestu, en suðaustan strekkingur og líkur á éljum við vesturströndina undir kvöld. Frost víða 2 til 10 stig.