Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Spáð brjáluðu veðri fyrir austan

Read Full Article →

Stórhríð skellur á austanverðu landinu í dag. Veðurspáin er svo slæm að lögreglan á Austurlandi hvatti fólk í gær til að halda sig heima í dag ef það þyrfti ekki að vera á ferðinni. Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs á austanverðu landinu taka gildi með morgninum og upp úr hádegi taka gildi appelsínugular viðvaranir á Austurlandi og Austfjörðum vegna stórhríðar. Þá er spáð 20 til 28 metrum á sekúndu, snjókomu og skafrenningi. Ekkert ferðaveður verður á þessum slóðum og hætta er á foktjóni. Öllu rólegra verður á vestanverðu landinu, hægari vindur og sunnan heiða verður bjartviðri. Frost verður á bilinu eitt til tíu stig í dag. Veðurspáin er svohljóðandi: Gengur í norðvestan átján til 28 metra á sekúndu í dag, hvassast á Austfjörðum, en hægari vindur á vesturhelmingi landsins. Snjókoma og skafrenningur á Norðaustur- og Austurlandi, él norðvestantil, en þurrt að mestu sunnanlands. Frost allt að átta stig. Styttir upp í kvöld, fer að draga úr vindi og herðir á frosti. Gengur í suðaustan þrettán til tuttugu á morgun með snjókomu og síðar rigningu eða slyddu, en hægari og lengst af úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hlýnandi, hiti víða 0 til 8 stig síðdegis. Suðaustan og sunnan 8-15 annað kvöld og kólnar vestantil með éljum.

Share this article