Lögreglan á Austurlandi vekur athygli á slæmri veðurspá á morgun og hvetur þá sem ekki þurfa að vera á ferðinni að vera heima. Þeir sem þurfa að ferðast eru beðnir um að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum. Norðvestan hríð eða stórhríð er spáð á norðaustanverðu landinu eftir hádegi á morgun og Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum klukkan 13:00 á morgun. Þar er spáð norðvestan 20 til 28 metrum á sekúndu, snjókomu með köflum og skafrenningi. Ekkert ferðaveður verður á þessum stöðum og er staðbundið foktjón mögulegt. Gular viðvaranir verða í gildi á nær öllum austurhelmingi landsins og hálendinu frá hádegi og fram á kvöld. Vegagerðin vekur athygli á gulum og appelsínugulum veðurviðvörunum sem taka gildi á morgun, mánudaginn 2. mars, fyrir austan, norðaustan og suðaustanvert landið. Óvissustig tekur gildi víða á svæðunum og má búast við því að vegir geti lokað með skömmum fyrirvara. Ekki dregur úr vindi og ofankomu fyrr en seint annað kvöld.