Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Styðja við sjálfbæra auðlindanýtingu og sterkara hringrásarhagkerfi

Read Full Article →

Hringrás hefur áratugalanga reynslu í söfnun, vinnslu og útflutningi á brotmálmum og hjólbörðum og gegnir lykilhlutverki í íslensku hringrásarhagkerfi. Fyrirtækið, sem hefur starfað í yfir 60 ár, hefur á síðustu misserum tekið stórt skref fram á við í að styrkja stöðu sína sem eitt stærsta og fremsta endurvinnslufyrirtæki landsins á sviði brotajárns. „Fyrir um ári síðan fluttum við meginstarfsemina á Álhellu 1 í Hafnarfirði, á um fimm hektara lóð þar sem byggð hefur verið upp tæknivædd úrvinnsluaðstaða,” segir Óttar Freyr Lárusson, sölustjóri hjá Hringrás. „Í Hafnarfirði er nú starfrækt 2.000 fermetra flokkunarstöð fyrir úrgang frá fyrirtækjum og nýr rafknúinn 1.300 hestafla málm- og brotajárnstætari. Tætarinn gerir fyrirtækinu kleift að taka á móti fleiri og fjölbreyttari úrgangsstraumum en áður og hámarka endurnýtingu þeirra efna sem berast,” segir Óttar. Bergrún Ósk Ólafsdóttir, rekstrar- og gæðastjóri Hringrásar, segir að kjarni starfsemi Hringrásar sé söfnun og úrvinnsla brotmálma. „Árlega eru um 40.000 tonn flutt út til vottaðra samstarfsaðila víðs vegar um Evrópu. Þar eru efnin endurunnin og nýtt beint í framleiðslu nýrra málmafurða. Með öflugum búnaði er nú framleitt hágæða endurvinnsluefni með það að markmiði að sem minnstfaritil spillis. Í dag fer einungis lítill hluti úrgangs í aðra meðhöndlun en endurnýtingu,“ segir hún og bætir við að fyrirtækið framleiði jafnframt hágæða endurvinnsluefni. Gefa dekkjum nýtt líf Hringrás þjónustar fyrst og fremst fyrirtæki og býður þeim heildarlausn í úrgangsmálum. Fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum upp á fjölbreytt úrval gáma og segir Óttar að sérstök áhersla sé lögð á samstarf við fyrirtæki þar sem gerðar eru ríkar kröfur um vandaða flokkun úrgangs, ekki síst þar sem málmar falla til. „Félagið býr yfir miklum lager af gámum og ílátum til þess að þjónusta fjölbreyttum og ólíkum þörfum viðskiptavina með flestalla úrgangsflokka,” segir hann. Bergrún segir að söfnun og útflutningur á hjólbörðum sé líka stór þáttur í starfsemi Hringrásarog er fyrirtækið stærstiútflutningsaðili á dekkjum á landinu. „Dekkjum er gefið nýtt líf í gegnum endurvinnsluferli erlendis.Þá eru rafgeymar, semáður töldust vandmeðfarnir úrgangsflokkar, nú að ná 100% endurnýtingu með vandaðri hreinsun og ströngum vottunarkröfum.” Hún segir að úrgangsstraumar séu því rekjanlegir og faritil viðurkenndra aðila sem uppfylli allar kröfur um ábyrga meðhöndlun og mikil áhersla sé lögð á ítarlega flokkun og hámarksendurvinnslu. Lágmarka umhverfisáhrif á öllum stigum starfseminnar Útflutningur fer fram beint frá starfsstöðvum í Hafnarfirði, Akureyri og Reyðarfirði. „Með því að útskipun fari fram frá þessum höfnum erum við ekki að leggja auka álag á innviði eins og vegakerfið okkar, við notum stystu mögulegu landleiðir hverju sinni, sem dregur úr álagi á vegakerfið og minnkar kolefnisspor flutninga,” segir Bergrún og bætir við að þessi nálgun sé liður í markvissri umhverfisstefnu þar sem lögð er áhersla á að lágmarka umhverfisáhrif á öllum stigum starfseminnar. Bergrún segir að lokum að meðnýrristaðsetningu, aukinnitæknivæðingu og skýrari stefnu um hámarksendurnýtingu í endurvinnslu sé Hringrás að styðja við sjálfbæra auðlindanýtingu og sterkara hringrásarhagkerfi á Íslandi.

Share this article