Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Þeir hafa verið í baráttu og eru vanir því að berjast og standa saman“

Read Full Article →

Hundruð meðlima hjálparsamtaka, vináttufélaga, stéttarfélaga og stjórnmálahreyfinga víðs vegar að úr heiminum hafa stefnt til Kúbu til þess að færa mannúðaraðstoð til landsins. Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Sesar A., er staddur í Havana, höfuðborg Kúbu, en hann er formaður VÍK (Vináttufélag Íslands og Kúbu). „Allt í allt eru þetta 650 manns frá 33 löndum og hátt í hundrað samtök sem standa að þessu,“ segir Sesar. Samtökin standa fyrir skipalest sem siglir frá Mexíkó til Havana og einnig loftbrú frá Evrópu til Kúbu í mars. Markmiðið er að færa Kúbverjum hjálpargögn til þess að halda heilbrigðiskerfinu gangandi. Viðvarandi krísa í meira en 60 ár Margir íbúar Kúbu voru án rafmagns um helgina þegar raforkukerfi landsins hrundi — í annað sinn í þeirri viku. Um 10 milljónir voru án rafmagns. Raforkukerfið reiðir sig að miklu leyti á olíu en lítið sem ekkert hefur borist af henni til landsins síðan í upphafi árs vegna herkvíar Bandaríkjastjórnar. „Kerfið er gamalt og viðkvæmt líka,“ segir Sesar. „Það er rafmagnslaust í vissum hlutum og ég er í Havana og á hóteli og við finnum ekki mikið fyrir þessu en það er mismunandi eftir hverfum,“ segir Sesar sem tekur fram að rafmagn sé á sjúkrahúsum og öðrum stofnunum en í mörgum hlutum landsins sé ástandið annað og verra. Sesar segir að íbúar í Havana og landinu sjálfu séu ýmsu vanir. „Fólk er búið að búa við þetta í 60 og eitthvað ár,“ segir Sesar. Forgangur í landinu sé að halda heilbrigðiskerfinu gangandi. „Orkan er það takmörkuð að þeir halda grunnstoðunum eins og heilbrigðiskerfinu og skólakerfinu,“ segir hann. Ekki sé mikið um almenningssamgöngur í Havana en að fólk komist í og úr vinnu. „Þetta gengur en þetta er mjög erfitt ástand en þetta er orðið erfiðara núna,“ segir Sesar en Bandaríkin hafa beitt Kúbu miklum þrýstingi undanfarið og hefur landið glímt við þungan efnahagsvanda síðustu ár. Beygðir en ekki brotnir undan þrýstingi Bandaríkjanna Engin olía hefur borist þangað síðan 9. janúar, eftir að Donald Trump bannaði olíuflutninga frá Venesúela, helstu bandalagsþjóð Kúbu. Það hefur einnig haft það í för með sér að mörg flugfélög hafa látið af ferðum til landsins, sem er þungt högg fyrir ferðaþjónustu, eina helstu tekjulind landsins. Þá var einnig sett á viðskiptabann, hafbann og sektir á þriðju aðila sem eru í viðskiptum við Kúbu. Ásamt þessu hafa Bandaríkin sett Kúbu á lista yfir lönd sem styðja við hryðjuverk. Þrátt fyrir þetta segir Sesar að lífið gangi sinn vanagang í landinu. „Fólk er ekki úti á götum hér að rífa í hár sér,“ segir Sesar. „Það er skömmtunarkerfi og það sveltur enginn en það er erfitt að fólk er víða ekki með gas til að elda en það er mismunandi eftir svæðum,“ segir hann. „Þeir hafa verið í baráttu og eru vanir því að berjast og standa saman,“ segir hann.

Share this article