Truflanir á rafmagni hafa verið tíðar á Kúbu síðustu ár. Í vikunni hefur verið víðtækt rafmagnsleysi, meðal annars í höfuðborginni Havana. Stjórnvöld segja viðgerð geta tekið allt að fjóra daga. Fólk matreiðir yfir opnum eldi og ekki er hægt að geyma mat í kæli. Í ofanálag hefur Bandaríkjastjórn hótað hækkuðum tollum á öll ríki sem útvega Kúbu olíu og kominn er skortur. Sorpbílar eru því ekki á ferðinni og ruslið safnast upp. Strætisvagnar ekki heldur, né flugvélar og tekjur af ferðamönnum hafa hríðfallið. Stjórnvöld í Mexíkó hafa síðustu daga sent neyðarvistir því skortur er á mat. Honum var dreift til aldraðra í vikunni. „Þetta er versta efnahagskrísa sem við höfum nokkurn tíma upplifað, í það minnsta á einræðistímanum,“ segir blaðamaðurinn Camila Acosta. Rafmagnslaust hefur verið á stórum hluta Kúbu í vikunni og raunir því tengdar bætast við erfiðleika vegna olíuskorts. Blaðamaður í landinu segir efnahagsstöðuna aldrei hafa verið eins slæma undir einræðisstjórninni. Hún segir að óðum sé að kvarnast úr þeim þykka vegg ótta sem kommúnistastjórnin hafi reist og að fólk sé farið að láta rödd sína heyrast og gagnrýna stjórnarhætti. „Því að stundum getur kúgun unnið gegn tilgangi sínum. Þjóð sem býr við eymd, hverju hefur hún að tapa? Ég á engan mat, engin lyf, get ekki gefið börnunum morgunmat fyrir skóla, þau fara skólaus í skólann. Hvað ætlarðu að gera? Fangelsa mig? Hvað annað gæti gerst?“ Marlene Ricardo sem býr í Havana segir að það þurfi að bjarga Kúbu, staðan sé einfaldlega orðin of slæm. Það þurfi að bjarga Kúbu. „Ef rafmagnið væri eina vandamálið...Það er ekkert gas, við þurfum að brenna við eða kol. Það er ekkert vatn og ekki nægir peningar til að kaupa mat.“