Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 24.3.2026 | 15:15 ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Þorgrímur, Grímur og Diljá voru ekki öll sammála. Samsett mynd Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Efast um að styrkir fyrir Evrópumál uppfylli skilyrði Ófrávíkjanleg krafa um yfirráð „Kommissarinn“ íslenskur Viðræður sjálfstæð uppspretta óvissu » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Efast um að styrkir fyrir Evrópumál uppfylli skilyrði Ófrávíkjanleg krafa um yfirráð Segir fjáraukalög hafa verið brotin Ætla ekki í ófjármagnaðar aðgerðir Hálftíma argaþras á þingi » Fleiri tengdar fréttir Forsíðufrétt Morgunblaðsins, þar sem fram kom að utanríkisráðherra meti það svo að í hugsanlegum aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið (ESB) sé líklegra að sambandið tæki upp íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið en að Íslendingar þyrftu að aðlaga sig sjávarútvegsstefnu ESB, kom mjög við sögu í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, benti á að utanríkisráðherra hefði hvorki staðfest né hrakið það sem þar kæmi fram, og Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, spurði í hvers umboði viðræður við ESB færu nú fram. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, hnýtti hins vegar í umfjöllunina og virtist draga heimildarmenn blaðsins í efa. Frétt af mbl.is „Kommissarinn“ íslenskur Kommisarinn kemur í hlut Íslendinga Ummælin um fiskveiðistjórnunarkerfið lét Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, falla á fundi með forvígismönnum íslenskra millilandaviðskiptaráða sem haldinn var í utanríkisráðuneytinu síðdegis á mánudag í liðinni viku. Þrír fundargestir staðfestu þau við Morgunblaðið. Þeir sögðu jafnframt að Þorgerður teldi að með aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi „fiskveiðikommisarinn“, sá meðlimur framkvæmdastjórnar ESB sem fer með sjávarútvegsmál, koma í hlut Íslendinga. „Hver treystir þjóðinni?“ Þorgrímur Sigmundsson hóf ræðu sína um fréttina á því að spyrja: „Ef rétt reynist sem fram kemur í þeirri frétt er kannski ekki nema von að spurt sé: Hver treystir þjóðinni?“ Eftir að hafa rakið efni umfjöllunarinnar spurði hann í hvers umboði viðræður Þorgerðar við Evrópusambandið færu fram, þar sem hvorki hefði verið kosið um málið á Alþingi né í þjóðaratkvæðagreiðslu. Fundargestirnir sögðu að Þorgerður teldi að með aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi „fiskveiðikommisarinn“, sá meðlimur framkvæmdastjórnar ESB sem fer með sjávarútvegsmál, koma í hlut Íslendinga. Ljósmynd/ESB Hvorki staðfest né hrakið Diljá Mist Einarsdóttir situr í utanríkismálanefnd Alþingis. Hún vísaði til fréttarinnar í ræðu sinni í tengslum við „vaxandi óánægju stjórnarandstöðunnar með samráðsleysi og virðingarleysi fyrir mikilvægu og lögbundnu hlutverki nefndarinnar.“ „Á forsíðu Morgunblaðsins í dag er fjallað um meint ummæli hæstvirts utanríkisráðherra um embætti sem kunni að koma í hlut Íslands við inngöngu í ESB. Ummælin eru höfð eftir þremur fundargestum á fundi hæstvirts ráðherra með íslensku millilandaviðskiptaráðunum,“ sagði Diljá. „Mér sýnist ummælin hvorki hafa verið staðfest né hrakin af hæstvirtum ráðherra, sem hefur þó gefið út sérstaka yfirlýsingu vegna þessa. Ráðherrann kemur einmitt á fund utanríkismálanefndar á morgun.“ Diljá sagði einnig að nefndarmenn í utanríkismálanefnd hefðu ítrekað óskað eftir upplýsingum um formlega og óformlega fundi íslenskra ráðamanna með fulltrúum ESB. „Við þurfum að fá að vita nákvæmlega hvaða samtöl hafa verið í gangi og um hvað.“ Kallaði heimildarmennina strámann Í ræðu sinni hnýtti Grímur Grímsson hins vegar í umfjöllun Morgunblaðsins. Hann lýsti yfir vonbrigðum með ræðu Þorgríms og kallaði heimildarmenn blaðsins einhvern strámann. Ekki er ljóst hvað Grímur átti við með því, en „strámaður“ er ímynduð persóna sem er sett fram í rökræðum og er látinn standa fyrir afbakaðar skoðanir andstæðinga. Þá vísaði Grímur í yfirlýsingu Þorgerðar í kjölfar fréttarinnar og sagði hana hafa sagt „að þetta sé algjört bull.“ Í umræddri yfirlýsingu segir ráðherrann að samningaviðræður við Evrópusambandið séu ekki hafnar, þrátt fyrir umræður undanfarinna daga um að Ísland sé komið lengra í ferlinu. Hún neitar þó hvorki né staðfestir að öðru leyti það sem fram kemur í frétt Morgunblaðsins. Frétt af mbl.is Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Efast um að styrkir fyrir Evrópumál uppfylli skilyrði Ófrávíkjanleg krafa um yfirráð „Kommissarinn“ íslenskur Viðræður sjálfstæð uppspretta óvissu » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Efast um að styrkir fyrir Evrópumál uppfylli skilyrði Ófrávíkjanleg krafa um yfirráð Segir fjáraukalög hafa verið brotin Ætla ekki í ófjármagnaðar aðgerðir Hálftíma argaþras á þingi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Myndskeið: KA-maðurinn ótrúlegi bestur Neitar að hafa tekið stúlku með sér um borð ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Notkunin á ratsjáraðflugi lítil undanfarin ár Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lifði slysið af: Fannst hundrað metrum frá flakinu Við hvern er verið að semja í Íran? Allt innanlandsflug í lamasessi til morguns Getur hæglega endað með gosi Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Gul viðvörun fyrir land allt „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar „Ég er harmi slegin“ „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Nýjast á mbl.is » Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Myndskeið: KA-maðurinn ótrúlegi bestur Neitar að hafa tekið stúlku með sér um borð ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Notkunin á ratsjáraðflugi lítil undanfarin ár Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Lifði slysið af: Fannst hundrað metrum frá flakinu Við hvern er verið að semja í Íran? ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Gul viðvörun fyrir land allt „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar „Ég er harmi slegin“ „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni „Fundum manninn hálfsturlaðan“

Share this article